Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 56
54
sem frá því var skýrt, að ráðuneytið óskaði eftir að kennsla
færi fram í þessari grein og væri reiðubúið að láta fyrri ákvæði
reglugerðar taka gildi á ný. Mælti háskólaráð eindregið með
þeirri skipan. Voru hin nýju ákvæði sett með rgj. frá 5. nóv.
1968.
Árni Böðvarsson, cand. mag., var síðan settur dósent í al-
mennum málvísindum og hljóðfræði frá 1. nóv. 1968 að telja.
Inntaka í læknadeild.
Með bréfi 10. júlí 1968 til Menntamálaráðuneytis var greint
frá ályktun háskólaráðs frá 4. júlí s. á. þess efnis, að háskóla-
ráð féllist á það mat læknadeildar, að deildin hafi hvorki mann-
aíla né mannvirki til að mennta nema tiltölulega takmarkaðan
fjölda stúdenta árlega, eða 20—25. Háskólaráð taldi takmörk-
un að aðgangi að námi í einstökum deildum óæskilega. Hins
vegar taldi háskólaráð sig ekki eygja annan möguleika en að
takmarka aðgang að læknanámi, eins og á stóð, nema tryggð-
ar væru fjárveitingar til öflunar húsnæðis og aukinna kennslu-
krafta samkv. nánari áætlun deildarinnar. Lögð var áherzla á,
að kannað væri, hvort unnt væri að fá fyrirheit ríkisstjórnar
um slíkar fjárveitingar, og taldi háskólaráð rétt, að ákvæði um
takmörkun á aðgangi að læknanámi komi ekki til framkvæmd-
ar, fyrr en með skrásetningu til náms háskólaárið 1969—1970.
1 bréfinu var síðan óskað viðræðna við menntamálaráðherra
um málið. Við fjáriagaafgreiðslu sumarið 1968 voru að vísu
ekki bornar fram ákveðnar tillögur í sambandi við þetta mál,
enda voru þær tillögur afgreiddar til ráðuneytis, er ofan-
greind ályktun var gerð. Hins vegar kom það fram almennt við
úrlausn um fjárveitingatilmæli, að vegna fjárhagsástands þótti
ekki fært að fallast á nýmæli í þeim tilmælum, nema þau er
lytu að náttúrufræðikennslu. Á ósk um reglugerð um inntöku
í læknadeild var minnt með bréfi Háskólans 30. des. 1968, og
er m. a. bent á í bréfinu, að ef horfið verði að því ráði að setja
reglugerð um takmörkun á aðgangi að læknadeild, ætti að gera