Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 17
15
Á þessu árabili hefir lagadeild brautskráð alls 546 kandídata, þar
af 128 á árunum 1960—1968. Hefir lagadeild brautskráð ámóta
marga kandídata og læknadeild, en þær deildir tvær hafa braut-
skráð meira en 50% af öllum kandídötum skólans frá upphafi.
Þótt eftirtekja um kandídata sé mikil hjá lagadeild, hefir hún
verið fáliðaðri deild um kennaralið en góðu hófi gegnir, og í fjár-
lagafrumvarpinu sést, að hún er meðal þeirra deilda, sem minnst-
ar fjárveitingar eru lagðar til — og myndi þetta þó verða enn
skýrara, ef heildarkostnaður væri settur í tengsl við fjölda stú-
denta. Nú fer fram endurskoðun á námstilhögun í deildinni, og er
vonandi að deildin fái aukna kennslukrafta, svo að unnt verði að
velja það fyrirkomulag, er bezt henti. 1 tilefni þessa afmælis
hafa ýmsir lögfræðingar og stofnanir og sérstaklega 10 ára kandí-
datar gefið bókagjafir til deildarinnar. Færi ég gefendum alúðar-
þakkir og verður siðar skýrt nánar frá þessari gjöf. Óska ég laga-
deild, samkennurum mínum og stúdentum hjartanlega til ham-
ingju með þetta afmæli og árna deildinni allra heilla í mikilvæg-
um framtíðarstörfum.
vm.
Fátt setur meir mark sitt á þetta háskólaár en húsnæðisþreng-
ingar. Vil ég þakka kennurum og stúdentum, hve vel þeir hafa
brugðizt við erfiðleikunum. Eina ljósglætan er sú, að tekizt hefur
nú í haust að fjölga lestrarsalssætum fyrir læknastúdenta og
tannlæknastúdenta um rösklega fimmtíu. Það var lengi vel von
okkar, að Árnagarður yrði að einhverju leyti tilbúinn til afnota
nú í haust. Sú von brást, en næsta haust verður húsið með vissu
tilbúið, og mun þá bæta úr brýnni þörf. Raunsæ könnun á þörf
Háskólans á húsnæði til kennslu og til vinnuherbergja fyrir kenn-
ara svo og vegna lestrarsala stúdenta leiðir í ljós, að óverjandi
er að láta næsta ár líða svo, að ekki verði hafizt handa um nýja
byggingu til þess að bæta úr hinni almennu húsnæðisþörf, ef svo
má að orði kveða. Þrátt fyrir tilkomu Árnagarðs, fer því fjarri
að þörf á kennsluhúsnæði sé fullnægt, ef skipta á kennslu niður
með hagkvæmum hætti fyrir stúdenta og kennara. Húsnæði
skortir og mjög til kennslu í ýmsum greinum í læknadeild, þ. á m.