Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 36
34
ann og hlynna að honum. Hér er mikið verkefni að vinna og í því
efni þarf Háskólinn m. a. að ná betur til þjóðarinnar með málefni
sín og samstilla krafta kandídata héðan og stúdenta til almennr-
ar sóknar. Því verðum við Háskólans menn að gera okkur
grein fyrir, að við verðum að leggja mikið á okkur við undirbún-
ing tilrauna og greinargerða um ný kennslusvið og rannsóknar-
stofnanir. Ég vil í þvi efni minna á hugmyndina um stofnun, er
fjalla skyldi um hafið og nýtingu auðæfa í hafi og á hafsbotni
frá hagfræðilegu, tæknilegu og lögfræðilegu sjónarmiði. Slík haf-
rannsóknarstofnun gæti af auðsæjum ástæðum gegnt mikilsverðu
hlutverki og hún ætti að verða fljótlega mjög öflug stofnun svo
mjög sem hafið og nýting þess varðar alla afkomu okkar. Þá er
enn fremur æskilegt, að unninn verði bráður bugur að því að
hrinda í framkvæmd hugmyndum um norræna jarðfræðistofnun,
sem margir ágætir menn og okkur vinveittir hafa sett fram.
Rannsóknarstofnanir um félagsfræðileg efni skortir hér bagalega,
svo sem varðandi afbrot, svo og vernd barna og ungmenna, um
ýmis atriði, er varða fjölskyldufélagsfræði, o. s. frv. Þá hljóta
að rísa hér öflugar sagnfræði- og málvísindastofnanir, læknis-
fræðistofnanir o. m. fl. Meðan Háskólanum er svo þröngur stakk-
ur skorinn sem raun ber vitni um, verða slíkar hugmyndir þó
öðru fremur loftkastalar. íslenzka fjárveitingarvaldið ræður
mestu um framþróun þessa, en með engum rétti verður sagt, að
hugmyndir um efiingu Háskólans skorti frá hálfu Háskólans
manna.
VII.
Á umliðnu háskólaári hafa alls 135 lokið kandidatsprófi eða
öðru burtfararprófi frá Háskólanum, þar af 95 nú í vor. Kandí-
datar þessa háskólaárs skiptast svo á greinir:
Guðfræði 5, læknisfræði 21, tannlækningar 6, lyfjafræði lyf-
sala 9, lögfræði 8, íslenzk fræði 4, B.A. í heimspekideild 25, ís-
lenzkupróf f. erl. stúdenta 3, verkfræði 25, viðskiptafræði 29.
Hafa kandidatar aidrei fyrr verið jafnmargir sem nú á einu
háskólaári.