Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 162
Landsbyggðin og höfuðborgin
Hér kem ég að öðru stefinu sem ég vildi nefna: Landsbyggðin og höfuðborgar-
svæðið. Að þessu sinni eruð þið 41 kandídat af 244 sem lukuð stúdentsprófi frá
menntaskólum á landsbyggðinni. Hversu mörg ykkar munu hverfa afturtil
heimabyggðar? Ekki þarf að fjötyrða um þá búferlaflutninga sem nú eiga sér stað
svo mjög sem þeir hafa verið tit umræðu. Þetta er vafataust einn stærsti menn-
ingarvandi okkar um þessar mundir, ekki síst vegna þess ójafnræðis sem skap-
ast meðal byggðarlaga við þessar aðstæður. Rótleysi. óróleiki og kvíði sem þessu
umróti fytgir setja svip sinn á þjóðlífið allt. Efnahagstegt góðæri kyndir undir
spennu og átökum, sem vissulega teysa úr læðingi skapandi krafta. en valda því
jafnframt að fjöldi fólks á erfitt með að staðsetja sig í titverunni og kunna fótum
sínum forráð. Höfuðborgarsvæðið virkar í dag eins og segutl einmitt vegna þess
að þar er blómlegt og öflugt menningarlíf sem á ekki sinn líka neins staðar ann-
ars staðar á landinu. Þess vegna verður sú þróun sem nú á sér stað ekki stöðvuð
nema með því að skapa menningartegt mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Til þess
eru að mínum dómi tvær leiðir. Önnur er sú að mynda annað eða önnur svæði á
tandinu sem hefðu burði til að laða til sín fólk vegna fjölbreytts og skapandi
menningar- og atvinnulífs. Hin leiðin er sú að berjast fyrir viðhorfsbreytingu með
því að opna augu fólks fyrir margvístegum kostum þess að búa úti á tandi. ekki
síst þeim að njóta friðsemdar og nábýlis við náttúruna sem ekki finnst í fjötmenn-
inu ..fyrir sunnan". Vera má að hvorug þessara teiða sé okkur fær um þessar
mundir. Þróun menningar verður ekki stýrt með vatdboði að ofan: fólk verður
sjálft að finna hvar það getur best staðsett sig í tilverunni. En ég er sannfærður
um að teiðirnar tvær sem ég nefndi verða von bráðar að veruleika. Og því fyrr því
betra.
Heimilislíf og atvinnulíf
Næsta stef. sem ég ætla að nefna, tengist rótteysi og uppiausn samtímamenning-
ar sem búseturöskunin er skýrasta dæmið um. Það er heimilislífið andspænis at-
vinnulífinu, fjölskytdan andspænis framleiðslukerfinu. Ég vænti þess. ágætu
kandídatar, að ykkur sé umhugað um hvort tveggja: að eiga gott fjölskyldutíf og
starfa á öflugum vinnustað. En hér gildir það sama og í hinum tveimur fyrri stefj-
um sem hér hafa verið gerð að umtalsefni: íslensk þjóðmenning á í vök að verjast
gagnvart heimsmenningu. landsbyggðin á í vök að verjast gagnvart höfuðborgar-
svæðinu. fjölskyldan á í vök að verjast fyrir kröfum sem gerðar eru til fótks um
virka þátttöku í atvinnulífinu. Skýrasta dæmið um þetta er staða kvenna í menn-
ingu okkar. Þótt margt hafi áunnist í jafnréttismálum kvenna á síðari árum. að
minnsti kosti hvað formleg réttindi varðar. þá er það staðreynd að almennt taka
karlar enn ekki jafnmikinn þátt í heimilishatdinu og umönnun barna og konur.
Um leið og gerðar eru kröfur til kvenna um síaukna þátttöku í störfum utan heim-
ilisins hafa þær gert sér æ tjósari grein fyrir nauðsyn þess að afla sér menntunar.
bæði til þess að gegna skyldum sínum við þjóðfélagið og vegna sjálfra sín. Ég veit
tíka af reynslu að konur hafa iðulega mun víðtækari menntaáhuga en karlar sem
eru gjarnan háðir því að ná árangri í tilteknu starfi eða ákveðinni grein í samræmi
við þann keppnisanda sem fytgir gömlu hlutverki þeirra sem „fyrirvinna fjölskyld-
unnar". Hröð þróun atvinnu- og viðskiptalífs. nýjar starfsgreinar og umbylting
eldri greina. mótun nýrra fyrirtækja og uppstokkun hinna etdri. atlt þetta stuðlar
að streitu og álagi sem torveldar foretdrum að takast á við þau verkefni í fjöl-
skytdu- og heimilistífi sem margir þeirra kysu að geta axlað á fytlri og ábyrgari
hátt en þeim tekst að gera. Þessi vandkvæði bæði kvenna og karla við að uppfylla
þær kröfur sem til þeirra eru gerðar bitna á okkur öltum en þó mest á hinum
ungu og hinum öldnu. Þeir eiga atlt sitt undir sínum nánustu og megna ekki, svo
sem eðlilegt er. að verja sig fyrir þeim sviptivindum sem kunna að verða í fjöl-
skyldulífinu vegna hins mikla umróts sem á sér stað í efnahags- og atvinnulífi.
Menntun og menning
Þau þrenns konar vandkvæði samtímans sem ég hef nú fjaltað um - að íslensk
þjóðmenning eigi undir högg að sækja gagnvart heimsmenningu viðskipta og vís-
inda, landsbyggðin gagnvart höfuðborgarsvæðinu og fjölskyldan gagnvart fram-
leiðslukerfinu - ber okkur að skoða sem mikilvæg úrlausnarefni sem gera kröfu
til okkar atlra um hugkvæmni og frumkvæði. Við tökum vissulega menningu í arf
og hugsun okkar og líf mótast af aðstæðum og tíðaranda sem við höfum ekki sjálf
mótað. Þess vegna hættir okkur líka til að líta svo á að heiminum sé stjórnað af
framandi öflum. stefnum og straumum sem við sjálf fáum engu ráðið um. Voldug
og víðtæk efnahags- og stjórnmáiakerfi ráði lögum og lofum í veröldinni og við,
einstaklingarnir. séum leiksoppar þeirra. Ég bið ykkur. kandídatar góðir, að forð-
ast stíka örtagahyggju hversu sannfærandi sem hún kann að vera í ykkar huga.
Hún lýsir uppgjöf okkar fyrir öflum ómenningar og er andstæð þeirri fretsistrú
sem sönn mennta- og menningarviðleitni hvílirá. Menning okkar sprettur af
158