Hlín - 01.01.1917, Page 31
Hlín
29
reynir í kringum 5 metra á hæð. Frá þessum trjám á jeg að
hera kveðju út um landið til allra gróðrarvina. Þau eru til
orðin, lifa og vaxa af öllum kröftum, til þess að sýna og
sanna, að úr litlvun græðling, sem rjettilega er með far-
inn, getur á nokkrum árum orðið hátt, þróttmikið, fagurt
trje. Við hvert heimili eiga þeirra líkar að standa til skjóls,
til prýði og ánægju.
Af opinberu fje er árlega lagður fram Ijárstyrkur til
gróðrarstöðva. I gróðrarstöðvunum eru svo gerðar til-
raunir með ýmsar plöntur, bæði matjurtir, blómjurtir og
trjáplöntur. Tegundir ogalbrigði eru valin eltir því, livað
talið er líklegt að geli þrifist við lijerlend skilyrði. Þegar
svo full reynsla er fengin í tilraunastöðvunum l'yrir því,
að ein planta þrífist hjer, þá á almenningur að taka við
henni og rækta hana sjer til nota. Reynsla gróðrarstöðv-
anna er oft dýr, og margir eru erfiðleikarnir. Jeg Iveld að
enginn maður, sem ekki hefur átt við gróðrartilraunir,
geti gert sjer hugmynd um, hvað oft menn verða fyrir
vonbrigðum við það starf, þegar illa tekst til og tilraun-
in mishepnast. Ótal spurningar um orsökina koma upp
í huganum. Var ekki rjett valinn staður? Var of mikill
skuggi eða of mikil sól? Var jarðvegurinn of rakur eða
of þur, eða var eftirlitið ekki nógu nákvæmt, þegar þess
þurfti mest við? Hamingjan má vita það, og vonleysið
sest urri stund í öndvegi. Og svo á hinn bóginn, þegar
vel hepnast. Enginn þekkir þá gleði, nema sá, sem reynt
hefur. — Að sá er skemtilegt verk legg í moldina ör-
lítið íræ, og ætlast til að upp af því vaxi lifandi planta.
Hvernig má það ske? Jeg veit að vísu, að innan í l'ræ-
skurninu liggur undurlítil, samanbögluð planta, liggur
og livílist, og bíður eftir útboði. Enginn hefur vald og
krafta til að vekja hana, nema Guð, ein hugsun hans
skapar lífið. Á hverjum degi lít jeg eftir, hvort nokkur
verksummerki sjáist, og bíð með eftirvæntingu. I.oks
kemur sú stund, að ofúrlítil blöð lyl'ta sjer upp úr