Hlín - 01.01.1917, Blaðsíða 60
58
Hlin
sitja á. Þar fáum við okkur blóm til að skreyta okkur
með, og þegar við höfum skoðað þar alt eftir vild, höld-
um við áfram í kringum luisið til vinstri. Þeim megin
við blómagarðinn er ribsrunnasvæðið, þá taka við epla-
trjen og loks erum við komin að bakhlið hússins og
þar er víðáttan mest. Næst lnisinu eru eldgömul stór
trje, en á bak við þau og alveg út að girðingu er stórt
grasi vaxið svæði. Til og frá um það eru netgirðingar
og smáliús fyrir alifuglana, því þar eru bæði hæns, end-
ur, fasanar og fleiri alifuglar. Þá komum við að gróður-
húsinu. Gróðurhús eru nokkurskonar vermireitir fyrir
ungar plöntur og að nokkru leyti suðrænn aldingarður í
snrærri eða stærri stíl eftir efnum fólks. Gróðurhúsin eru
úr gleri þar sem veit að sólu og hituð að neðan á ýms-
an liátt. Nýtísku gróðurhús eru lrituð með rafmagni alt
um kring. Stiður frá gróðurhúsinu voru á stóru svæði
ræktuð ber: jarðarber, stykkilsber og hindber, og þá tóku
við ýms trje suður að hliðinu sem við komum inn um.
Rjett við gróðurhúsið var annað lítið hús, einlyft, með
dyrum fyrir rniðju og tveimur herbergjum: eldhúsi, sem
jafnframt var stofa, og svefnherbergi. í svipuðum s'tíl eru
flest verkamannahús utan borgarinnar bygð. En sjaldan
eða aldrei vantar blórn fyrir utan þau, víða eru líka trje
og sumstaðar berjarunnar, eins og t. d. við þetta hús,
sem jeg nefndi. Þar bjuggu hj<5n, sem áttu 4 upþkomin
börn. Synirnir voru allir námumenn og voru heima að-
eins um helgar, og dóttirin var vinnukona í einhverju
húsinu þar skamt frá. En gömlu hjónin hirtu garðinn
sinn og bjuggu sig undir að eiga glaðan sunnudaginn
með börnum sínum, sem oft komu með einhverja kunn-
ingja með sjer, enda rnátti oft heyra heim til okkar, að
glatt var á hjalla í litla húsinu. Áður hafði þetta hús til-
lieyrt heimilinu, sem jeg var á, og þar hafði þá búið
garðyrkjumaður, sem hirti garðinn, því það er altítt, þar
sem garðyrkjumaður er haldinn, að hann heftir til íbúð-
ar lítið hús í einhverjum útjaðri garðsins og lifir þar