Hlín - 01.01.1917, Qupperneq 39
Hlin
37
hefur verið hægt að gera, enda hala fjelagskonur starfað
með lífi og sál að fjelagsskapnum og hann notið mikilla
vinsælda hjá bæjar -og hjeraðsbúum. Þetta hvorutveggja
gefur manni von um að fjelagið geti með tímanum kom-
ið í framkvæmd ýmsum fleiri þörfum málum innan síns
verkahrings, eins og t. d. að korna á fót dálitlu hjúkr-
unarhæli handa þeim sjúklingum fjelagsins, er ekki geta
legið heima.
Tekjur fjelagsins hafa hin síðari ár verið um 1500 kr.
á ári. Tillagið þó aldrei verið nema 1 króna.
Tillögur um það, hver eigi að verða hjálpar fjelagsins
aðnjótandi, koma frá hjúkrunarnefnd, hana skipa 5 kon-
ur, hafa þær ærinn starfa og eru allra manna kunnug-
astar ástæðum látæka fólksins, svo vissa er fyrir því, að
hjálpin kemur að hagkvæmum notum.
Þegar fjelagið hafði starfað um nokkurn tíma, fór hug-
myndin að útbreiðast til nærliggjandi hjeraða.Áttupresta-
stefnurnar norðlensku góðan þátt í því. Sóknarprestur-
inn á Akureyri, vígslul)iskup Geir Sæmundsson, er lje-
laginu og starfsemi þess injög hlyntur, og hvatti stjett-
arbræður sína til að gangast fyrir stofnun hjúkrunarfje-
laga í sínum prestaköllum.
Öllum ber saman um, að í sveitunum sjeu menn enn
lakar settir, er sjúkdóm ber að höndum, en í bæjunum,
fjarri lækni og sjúkrahúsi.
Hjúkrunarfjelagshugmyndinni liefur því hvervetna
verið vel tekið í sveitunum, og nokkur fjelög eru þegar
komin á legg.
I Eyjaí jarðarsýslu eru 3 fjelög starfandi, auk „Hlífar“-
fjelagsins: Hjúkrunarfjelag Grundarþinga, Hjúkrunar-
fjelag Svarfaðardals og „Hjálpin“ í Saurbæarhreppi.
í Vestur-Húnavatnssýslu: Miðfirði, Víðidal og Vestur-
hópi, eru 2 fjelög. Tvær deildir kvenfjelagasambands S.-
Þingeyinga hal'a starfandi hjúkrunarkonur. — Öll liafa
sveitafjelögin kostað hjúkrunarkonu til náms. — Hjeraðs-
læknarnir í Eyjaljarðar og Skagafjarðarsýslum hafa góð-