Hlín - 01.01.1917, Qupperneq 41
Hlin
39
Mentamál kvenna.
Kvennaskólinn d Blönduósi veturinn 1916—1917.
Fastir kennarar skólans vorn: Forstöðukona Sigurrós
ÞórÖardóttir, 1. kennari Anna R. Þorvaldsdóttir, 2. kenn-
ari Ingibjörg Einarsdóttir, 3. kennari Kristín Jónsdóttir.
Aukakennari var Elín Theódórsdóttir.
Skólann sóttu 54 námsmeyjar. Þeim var skipað í bekk-
ina þannig, að 15 voru í 1. bekk, 21 í 2. bekk, 18 í 3. bekk.
16 námsmeyjar útskrifuðust úr skólanum.
Námsgreinar voru: íslenska, danska, enska, stærðfræði,
saga, landafræði, eðlisfræði, grasafræði, heilsufræði, skrift,
teiknun, söngur, leikfimi, ýmiskonar fatasaumur, hvítur
og mislitur útsaumur, vírsaumur, liekl, prjón og viðgerð
á fötum, einnig var kent að teikna ýmsa uppdrætti, taka
snið og sníðá föt. Kenslustundir á viku voru um 40 í
hverjum bekk. Til bóknáms var varið 23 stundum, til
leikfimi 2 og til handavinnu 15. Auk þessa var kend mat-
reiðsla og ýms önnur hússtörf 6 stundir í hverjum bekk
þriðju Jhverja viku. Ennfrertiur var einni viku af námstím-
anum varið til matreiðslunáms eingöngu.
p. t. Reykjavík.
Sigurrós Þórðardöttir.
Húsmœðraskólinn i Gróðrarstöðinni við Akureyri.
Húsmæðráskóli minn var aðallega matreiðslu- og lranda-
vinnuskóli. Einni til tveim stundum á hverjum degi var
þó varið til bóklegrar fræðslu, og þá valdar þær greinar,
sem sjerstaklega geta komið að notum fyrir húsmæður.
Þau tvö ár, sem skólinn starfaði, nutu þar kenslu urn
30 nemendur, úr öllum fjórðungum landsins, og höfðu
þær allar heimavist. Flestar voru þær í málfundafjelagi
skólans.
Þegar skyldustörfum dagsins var lokið sátu kennarar