Hlín - 01.01.1917, Síða 59
Hlin
61
inum farmiða fyrir 45 aura. Þeim miða skilum við, er
við stígum út; eru þá liðnar 20 mínútur frá því er við
fórum af stað og við líklega búin að fara álíka leið eins
og það sem alment er kallað að vera tveggja tíma gang-
ur. Vagninn heldur beina leið.áfram, en við snúum inn
á veg til hægxi handar. Meðfrant honum beggja vegna
er plantað trjám, sem gnæfa langt yfir liöfuð okkar, en
í gegnum þau sjáum við á aðra hönd kartöfluakur mik-
inn, en grasekru á hina. Eftir sjö mínútna gang komum
við út á aðra stóra þjóðbraut en þá, sem við fyrst ók-
um eltir. Sú liggur líka til borgarinnar. Enn snúum við
til liægri og sjáum þá hlið og í gegnum það veg, er
liggur lieim að stóru liúsi, en við förum fram hjá því
og göngum nú 3 mínútur meðfram lifandi limgirðingu,
sem er hærri en við sjálf. Þá komum við að öðru hliði,
og þar hleypi jeg ykkur inn. Fyrst sjáið þið ekki annað
en trjágöngin, sem liggja í bugðu heim að húsinu; trjen
fljetta lim sitt yfir höfðutn okkar, en þó ekki svo þjett,
að ekki sjái í heiðan himin ltjer og hvar í gegn. Brátt
komum við heim að framhlið hússins, sem er tvílyft
steinhús með dyrum á miðju og stórum gluggum til
beggja handa, bæði uppi og niðri. Sitt hvoru megin við
dyrnar er plantað rósatrjám, sem nú alveg upp á þak-
brún, og sje þetta í júlí, þá standa þau í blóma og
mynda umgjörð utan um dyrnar úr rauðum, bleikum og
hvítuin rósum innan um græn blöðin. Þær brosa fram-
an í sólina og senda ilm sinn að vitum okkar. Við kær-
um okkur ekkert um að fara inn, en sjeum við lúin,
getum við sest niður, því að bekkir standa sinn hvoru
megin við rósatrjen undir gluggunum. Nú sjáum við
beint framundan okkur grasflöt, sljettan og trjám girtan
á þrjá vegu. Til vinstri handar rennur lækur og yfir liann
liggur brú, sem við skulum fara yfir, þegar við erum
búin að hvíla okkur dálitla stund. Þá komum við inn í
aðalblómagárðinn, sem ekki er girtur með öðru en trjám
og runnum. Þar inni er líka grasflötur og bekkir lil að