Hlín - 01.01.1917, Page 72
70
Hliri
legar og skritlegar bendingar og holl ráð um skóla og
lærdóm ýmislegan. Væri það rnjög hagkvæmt, bæði fyrir
fólk út um land og fyrir þá, sem ekki eru ráðnir í, þó
til Reykjavíkur sjeu komnir, hvað þeir eigi að taka sjer
fyrir hendur. Komið gæti og til mála, að þangað leituðu
aðkomustúlkur, er hefðu í hyggju að vinna fyrir sjer á
einn eða annan hátt, lengri eða skemri tíma. Telja má
víst, að stjórn heimilisins tækist venjulega betur að velja
stúlkunni hentugan stað en henni sjálfri, sem er öllum
ókunnug.
Mál þetta, er vjer teljum þess vert, að konur atliugi
það, verður að líkindum til umræðu á fundi S. N. K. á
Akureyri 1918 og væri því æskilegt, að það yrði rætt í
fjelagsdeildum Sambandsins á komandi vetri.
H. B.
Góðar bækur.
Með því margir hafa orðið til að leita upplýsinga um
rit, er fjalla um uppeldismál, kensluaðferðir, verklega
mentun kvenna, starfsemi kvenna í þjóðfjelagsmálum o.
s. frv., þá leyfum vjer oss að benda lesendum á nokkr-
ar góðar bækur ,er vjer þekkjum af eigin reynd og get-
um mælt hið besta með.
Lærerindernes blad. Utgit av norsk lærerindeforbund.
Árg. 3—4 kr.
For lijem og samfund. Socialt kristelig kvindeblad.
Árg. 3.50.
Vor ungdom. Danskt blað.
Dr. Maria Montessori: Montessori metoclen.
Imm. Floocl og H. Raabe: Kristendomskundskab. En
ledetraad lor lærere og lærerinder.