Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 27
Hlin
21
um skúf, silkiklút um hálsinn og íslenska skó á fótum.
Hin konan var í peysufötum, eins og þau gerast nú. Enn
komu tvær konur í upphlutsbúningnum; önnur í vír-
baldýruðum upphlut, feldu pilsi, húfu á höfði. Hin í upp-
hlut, baldýruðum með silki í svart flauel, borði frá mitti
að axlasaum, belti í saipa stíl og vírbaldýrað koffur um
höfuð ('gylt), sljett pils við,-úr rauðu taui, upphlutur úr
sama efni.
Að síðustu gengu tvær konur kjólklæddar; önnur í
garnla kjólnum, með silkiklút á herðum, skugghatt á
liöfði og íslenska skó; hin í nýtískukjól. —
Ennfremur fóru fram ræður og söngur, með nokkru
millibili. Kennari Jósef Björnsson hafði að ræðuefni:
Miklir menn. Búfræðingur Einar Jósefsson: Framtíðar-
starfsemi æskulýðsins. Kennari Sigurður Sigurðsson:
Vandvirkni. Skc'ilastjóri Sigurður Sigurðsson: Vakna þú,
er sefur, og statt upp til starfa. Húsfreyjurnar Anna Sig-
urðardóttir, prestkona í Viðvík, og Elinborg Björnsdóttir
í Kýrholti lásu upp sögu og kvæði. Til ágóða fyrir fjelag-
ið var bögglauppboð, seldur aðgangur, kaffi og fleiri veit-
ingar.
— Þá hef jeg að nokkru sagt lrá samkomu þessari, þótt
látt verði af því lært, enda öllu fremur ætlað til umhugs-
unar öðrurn ungum útkjálkafjelögum .
I þessu sambandi kemur mjer til hugar að geta að
nokkru Kvenfjelags Viðvíkurhrepps, er starfaði hjer í
sveitinni fyrir nokkrum árum. Það hefur nú í raun rjettri
breytt nafni í Iðnfjelag, í von urn víðtækari samvinnu.
Fyrir 9 árum síðan stofnaði fjelag Jretta til samkomn í
Kolkuósi, ásamt tveim málfundafjelögum næstu Iireppa.
Kvenfjelagið lagði fram til sýningar Jx't muni, er kost-
ur var á pg þóttu Jress verðir. Til fjölbreytni sátu 8 kon-
ur í sýningarhúsinu við vinnu í Jreiní greinum iðnaðar-
ins, er sjaldgæfastar eru meðal almennings: knipl, flos,
spjaldvefnað, ofin bönd á fæti sjer, baldýring, blómstur-
saum, listsaum, trjeskurð.