Hlín - 01.01.1921, Page 13

Hlín - 01.01.1921, Page 13
Hlin 11 þá frumvarp til !aga um sýslufjelag og vildu að það kæmist sem fyrst upp. Frumvarpið er prentað i »Hlín« 1918. Petta hefur þó dregist af ýmsum ástæðum, eflaust hafa vorharðindin undanfarandi ár átt sinn j>átt í því. í vor var útlit hið besta, veturinn hafði verið óvenjulega góður, svo allir voru í ljettu skapi. Konurnar mæltu sjer því mót á Akureyri í því skyni að hleypa nú fjelaginu af stokkunum. Nokkur fjelög höfðu samþ. að vera með og öll voru þau fús á að senda fulltrúa til skrafs og ráðagerða. En — veðurblíðan brást okkur þann daginn og fáir urðu fulltrúarnir. Pó komst á samþykt um stofn- un fjelags, lög og stjórnarkosning. Kosningu hlutu: Guðrún Björnsdóttir, Siglufirði, Sólveig Pjetursdóttir, Völlum og Rósa Kristjánsdóttir, Jódísarstöðum. — Pað verður gaman að iifa það, að margmennir fundir verða haldnir árlega einhversstaðar í sýslunni: t. d. á Akureyri, Siglufirði, Grund, eða Dalvík. — Fjelagssvæði S. N. K. er svo stórt, að ekki er að búast við, að konur geti al- ment sótt þá fundi, en þessa fundi ættu eyfirskar kon- ur að geta sótt, Pá verður hægt að sameina sig um ýms framfaramál, er snerta hjeraðið í heild sinni eða konurn- ar sjerstaklega, konurnar fá tækifæri til að kynnast og æfast í víðtækari fjelagsskap og heilbrigð samkeppni kemur fram um að hafa eitthvað gott og gagnlegt að sýna og segja á hverjum stað; Fundarkona. Garðyrkja og skógrækt. »Skrúður.« Ritstj. »Hlinar« hefur mælst til þess, að jeg sendi henni nokkur orð um lítinn gróðrarreit hjer að Núpi. Vildi jeg verða við þeim tilmælum, einkum af því að mjer er

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.