Hlín - 01.01.1921, Qupperneq 13
Hlin
11
þá frumvarp til !aga um sýslufjelag og vildu að það
kæmist sem fyrst upp. Frumvarpið er prentað i »Hlín«
1918. Petta hefur þó dregist af ýmsum ástæðum, eflaust
hafa vorharðindin undanfarandi ár átt sinn j>átt í því. í
vor var útlit hið besta, veturinn hafði verið óvenjulega
góður, svo allir voru í ljettu skapi. Konurnar mæltu sjer
því mót á Akureyri í því skyni að hleypa nú fjelaginu
af stokkunum. Nokkur fjelög höfðu samþ. að vera með
og öll voru þau fús á að senda fulltrúa til skrafs og
ráðagerða. En — veðurblíðan brást okkur þann daginn
og fáir urðu fulltrúarnir. Pó komst á samþykt um stofn-
un fjelags, lög og stjórnarkosning. Kosningu hlutu:
Guðrún Björnsdóttir, Siglufirði, Sólveig Pjetursdóttir,
Völlum og Rósa Kristjánsdóttir, Jódísarstöðum. — Pað
verður gaman að iifa það, að margmennir fundir verða
haldnir árlega einhversstaðar í sýslunni: t. d. á Akureyri,
Siglufirði, Grund, eða Dalvík. — Fjelagssvæði S. N. K. er
svo stórt, að ekki er að búast við, að konur geti al-
ment sótt þá fundi, en þessa fundi ættu eyfirskar kon-
ur að geta sótt, Pá verður hægt að sameina sig um ýms
framfaramál, er snerta hjeraðið í heild sinni eða konurn-
ar sjerstaklega, konurnar fá tækifæri til að kynnast og
æfast í víðtækari fjelagsskap og heilbrigð samkeppni
kemur fram um að hafa eitthvað gott og gagnlegt að
sýna og segja á hverjum stað;
Fundarkona.
Garðyrkja og skógrækt.
»Skrúður.«
Ritstj. »Hlinar« hefur mælst til þess, að jeg sendi henni
nokkur orð um lítinn gróðrarreit hjer að Núpi. Vildi jeg
verða við þeim tilmælum, einkum af því að mjer er