Hlín - 01.01.1921, Síða 20
18
Htín
ilt og grátlegt, er góð innlend kensla býðst í svo þörfum
fræðum, að hún sje ekki notuð, en útlenda fræðslan
sótt langa vegu með ærnum kostnaði, þótt hún sje okk-
ur að ýmsu leyti óhagkvæmari. Parf þó ekki að kvarta
um að konur þær, er lært hafa, skorti atvinnu að loknu
námi, það hefur verið sóst eftir vinnu þeirra víðsvegar
að af Iandinu. Búnaðarskólarnir vilja þá garðyrkjukonur,
hjeruð og hreppar óska eftir umferðakenslu, smánáms-
skeiðum og umhirðingu ungmennareita, lystigarðar bæj-
anna þurfa garðyrkjukonur, og görðunum við hælin og
sjúkrahúsin væri þörf á mörgum garðyrkju- og trjárækt-
arkonum, og þá ekki síður Pingvöllum, sem góðar vættir
vilja nú loks friða og fegra. (Einhver þarf að taka ást-
fóstri við Ásbyrgi á sama hátt, þann yndislega stað, og
endilega þarf það að verða opinber eign). Alþýðuskól-
arnir og húsmæðraskólarnir þurfa kénnara í garðyrkju og
trjárækt. Við hvera og laugar munu koma upp garðar í
stórum stíl, og þá væri kirkjugörðum vorum ekki van-
þörf á umhirðingu þeirra sem kunna, og þannig mætti
lengi telja. Pað mun sannast, að þær konur, sem eru svo
framsýnar að læra nú þegar, eiga von á ágætri atvinnu.
% *
*
Pessi eggjunarorð voru rituð á Kyndilmessu í vetur,
þegar alt útlit var fyrir, að engin ætlaði að sækja nánis-
skeið R. N. Til allrar hamingju sáu konurnar þó að sjer.
Fimm stúlkur hafa verið við nám í Gróðrarstöðinni á
Akureyri í sumar, alt áhugasamar og dugandi konur,
sem maður býst við miklu af. — Við svo búið hefði
því mátt standa að því ieyti, en síðan hafa margar radd-
ir látið til sín heyra um þetta mál sem vel er.
Bjargráð til framkvæmda virðast einkum felast í tillög-
um Helga Valtýsssonar, ritstj. Skinfaxa. Hann skrifar:
Rað hefur í mörg ár verið ein af mínum kærustu fram-
tíðarhugsjónum að komast heim aftur til Islands og rm