Hlín - 01.01.1921, Side 24
22
Hlln
(buxnaverk), bæði vænn og faliegur, dökkgrár með mjó-
um teinum mosalituðum, varð piltunum starsynt á efnið
og sögðu það ekki standa á baki útlendu, en er mikið
sterkara. Eigandinn gaf mjer pjötluna og lofaði jeg hon-
um, að sýnishorn af dúknum skyldu með góðra manna
aðstoð komast víðsvegar um ísland, og Ijet hann sjer
það vel líka. — Á sýningunni var margt af ágætu vjela-
prjóni, meðal annars blúndur og milliverk úr tvisti, var
hvoru tveggja smekklegt og jafngott útlendu. Litla og
laglega körfu úr íslenzkum tágum, sendi ein húsfreyjan.
Margir gullfallegir smíðisgripir voru til sýnis eftir þjóð-
hagann, Einar silfursmið á Tannstaðabakka, sem er ný-
látinn. Hann smíðaði ýmsa góða gripi á níræðisaldri.
Á sýningunni var spunavjel, sem einn af bændum
hjeraðsins hafði keypt um sama leyti. Konurnar komust
á snoðir um, að í Austursýslunni væri maður, slingur i
vjelaspuna, útskrifaður nýlega af námsskeiði á Akureyri.
F*ær voru ekki seinar á sjer að ná í mann þennan, spann
hann með prýði og kendi eigandanum um leið.*
Sýning þessi átti því láni að fagna sem hinar fyrri
hjeraðssýningar, að veður var hið besta og blíðasta,
enda ágæt aðsókn, lítur út fyrir að hollvættir íslands
haldi hlífiskildi yfir starfseminni.
Kona.
Landssýning á heimilisiðnaði í Reykjavik 1921.
Pað var margt á seyði síðastliðinn júnímánuð i Reykja-
vík. Eitt af því var sýning á heimilisiðnaði fyrir land all,
sem Heimilisiðnaðarfjelag íslands hafði boðað til.
* 'Vjelin spinnur í vetur alla ull bóndans, ef ekki stendur á kcmb-
um hjá Gefjunni, nýkeypt prjónavjel tekur svo við bandinu.
Pað er mikili hugur í V.-Húnvetningum og Strandamönnum,
að koma sjer upp kembivjelum og fá þeim komið niður á Fjarð-
arhorni í Hrútafirði, þar er rafstöð og húsakynni góð, en orkan
er, því miður, í minsta Iagi.