Hlín - 01.01.1921, Síða 28
26
Hlln
eða konu sem sjer um námsskeið og sýningar, athugar
handavinnuna í skólunum, hefur hönd í bagga með
um fræðslu handavinnukennara, annast um mat á uilar-
iðnaði og markað utanlands og innan. Stjórnarvöldin
verða að styðja viðleitni almennings um útvegun vjela,
er Ijetta framleiðsluna, t. d. kembingarvjela. — »En —
þetta verður alt svo dýrt,« segja menn. »já, að vísu, en
það fæst margfaldlega endurgoldið í aukinni starfsemi
og vaknandi áhuga um að framleiða sjálfur og spara
innflutning. Starfsemin bætir fólkið, og það verður ekki
metið til peninga«! — Sveita- og bæjafjelög mundu fús-
lega leggja fram fje til heimilisiðnaðarfræðslu á móti
rikissjóðsframlögum, og einstaklingurinn vill og nokkuð
á sig leggja til þess að fá að læra. »Tekst ef tveir vilja,«'
segir máltækið, hvað þá ef þrír eru samtaka.
Já, við eigum margt ógert fyrir næstu landssýningu,
en ef hendur standa fram úr ermutn og starfað er með
hug og dug að settu marki, þá sigrum við um síðir.
H. B.
Heilbrigðismál.
Augnspítalinn í New York.
Fáir menn hjer á landi munu vita um lækningastofnun eina
mikla og góða í New York, þar sem hægt er að fá góða
bót þeirra meina, sem þar er fengist við. Vil jeg því
reyna að gefa Iesendum »Hlínar« þær litlu upplýsingar,
sem jeg get. Ske mætti að það yrði einhverjum til gagns.
Eins og nafn og utanáskrift, er hjer fylgir, ber með
sjer, er þetta spítali fyrir augna-, eyrna-, nef- og háls-
sjúkdóma.
Haustið 1919 komst jeg| jjangað og íjekk góða og