Hlín - 01.01.1921, Side 36

Hlín - 01.01.1921, Side 36
34 Hlín íslendinga við að vera á eftir tímanum eða vera gamal- dags er blátt áfram hlægileg. F*að er ein hættan, sem stafar af því að vera smáþjóð. Þröngsýni o: heimska, er það að gleypa ekki við öllu nýju, hverju nafni sem nefnist. Ekki þarf að kenna útlendum áhrifum um þróttleysið í uppeldinu á landi voru, sú alda er runnin undan eigin rifjum. Hjá öðrum menningarþjóðum er lögð langtum meiri rækt við uppeldismálin en hjá oss og agi miklu strangari, enda heimska útlendingar þjóð vora fyrir, að hjer kunni enginn að hlýða. Ættum við ekki að reyna að vera samtaka um að hefja okkur yfir alt tískutildur og fylgja heilbrigðri skynsemi, nóg er hjer af henni, hamingjunni sje Iof, þótt hún fái ekki ætíð að njóta sín. Reyna að hugsa sjálfstætt, fljóta ekki með straumnum hugsunarlítið, það getur flotið að feigðarósi, áður en varir. Landið útheimtir líkamlegan styrkleik, og jafn lítilli þjóð er stór hætta búin af úr- kynjun, ef hún ekki megnar að halda fast við skipulegar og heilsusamlegar meginreglur, og hefur þroska til að hafna óhollum stefnum, hvort sem þær heldur hafa sprottið upp í þjóðarakrinum sjálfum eða eru aðfengnar. Umbóta-þörfin er mest á starfssviði kvenna, því er eðli- legt og sjálfsagt, að konur verði brautryðjendur í þessu umbótastarfi. Og þær konur, sem mega sín nokkurs vegna stöðu sinnar eða annara fríðinda, verða að feta á undan. Það er ekki nóg að hrista höfuðið og fjölyrða um ástandið, án þess að leggja hönd á plóginn til um- bóta. »Friður og öllu óhætt,« segja sumir, »hjá mjer er alt í góðu Iagi,« en: »þjer eruð hver annars limir,« líði einhver limurinn, er líkaminn ekki héill. — Heiibrigt er það ekki að vinna það fyrir tískutildur að klæðast skjóllausum flíkum hjer á norðurhjara heims. í öðrum löndum klæða menn af sjer hitann með hýja- líni, hjer þurfum við að klæða af okkur kuldann með skjólflíkum. F*að kemur hrollur í mann af að sjá þetta

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.