Hlín - 01.01.1921, Page 47

Hlín - 01.01.1921, Page 47
Hlin 45 Og það var lengi sem mjer fanst hann geta unnið margt þarfara.) Baðstofan var gömul og fremur hrörleg, en hún var rúmgóð, öll á Iengdina og rúmaði um 20 manns (auk þess sem við krakkarnir sváfum hjá vinnufólkinu). F*ar var þrifalega um gengið og röð og regla á öllu. Lag- legar heimaunnar ábreiður á rúmunum, hver hlutur á sínum stað — kambar bakvið sperrur, spænir og skeiðar í slíðrum ofan við rúmin, gæruhnifar í slíðrum uppi á bita og guðsórðabækur á hillu. Pví á hverju kveldi var Iesin hugvekja og á föstunni píslarsaga, og sálmar sungnir. (Pað vildi þá til að jeg sofnaði, en síður kom það fyrir, ef jeg gat farið að brosa að einhverjum sem var hjáróma eða fór út af Iaginu. Annars vandist jeg við þessa alvörustund og hugsaði gott með fólkinu). Petta reglusama, iðjuríka líf stendur oft fyrir mínum hugskotssjónum og mjer er söknuður að því. Að vísu fannst mjer þá sem vinnumennirnir gætu haft annað veglegra fyrir stafni en að raka gærur. Önnur mynd sem Njála hafði brugðið upp fyrir mjer, fannst mjer öllu til- komumeiri: »Skarphéðinn hvatti öxi, Orímur skepti spjót, Helgi hnauð hjalt á sverð, Höskuldur treysti mundriða í skildi«. En eftir því sem mjer óx fiskur um hrygg skildist mjer Oddalífið ákjósanlegra með friðsamri at- orku en bardagahugurinn á Bergþórshvoli. Og jeg óska þess oft, að í staðinn fyrir lausamennsku og letilíf, og í stað fólksleysis og sundrungar í sveitunum, komi aftur góða gamla íslenska heimilisskipulagið með mörgum hlýðnum og iðjusömum hjúum undir stjórn góðra hús- bænda. (Helst vildi jeg þar að auki að kæmist á þegn- skylduvinna fyrir unglinga bæði á Iandi og sjó með reglusemi og góðum aga, engu síðri en nú tíðkast við herþjónustu erlendis, þar sem kent er að vega menn.) En gjarnan vil jeg, að húsakynnin í sveitunum batni og ýms nýtísku vinnutæki, eins og »spunakona« Bárðar, leysi hin eldri af hólmi. Og ennfremur mættu koma

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.