Hlín - 01.01.1921, Page 59

Hlín - 01.01.1921, Page 59
Hlin 57 hef tekið eftir því, að yngri börn laga sig eftir háttum og siðum eldri barna á heimilum. Pað er sannleikur sem ekki verður á móti mælt, að framferði vort mótar alla undirstöðu uppeldisins. Auðvelt er að setja á sig íýlu- svip, þegar á móti blæs, en aftur á móti er það erfitt, en þó unt, að taka því með stillingu og skynsamlegri yfirvegan og spyrna á móti broddunum, þá koma ráð- in við meinunum af sjálfu sjer. Vjer vitum allar, hve næmur hláturinn er og brosið, börnin svara mjög snemma brosi með brosi. Próf. Guðm. Finnbogason segir: »Ljósgeislarnir kastast af hinu bros- andi andliti inn í auga áhorfandans, verka á nethimnu augans, vekja einskonar strauma, er berast til heilans og þaðan aftur til ýmsra vöðva, sem við það dragast sam- an, svo að maðurinn brosir.« Það munu ekki vera harmasárin djúpu, ekki lífsins “"þungu sorgir og sáru mein, sem gjöra lifið svo leitt, að oss liggur við að gefast upp. Miklu oftar smámunir einir: Ónot, sprottin af því, að svo mikið ílt býr með mannin- um, en vjer veitum því ekki eftirtekt, hvernig það hegg- ur á hjartastrengi þess, sem til er talað. Önuglyndi, orð- in til af því að vjer tömdum oss að viðhafa mælgi eða fjas út af smámunum. Ertni sprottin af löngun til að ýfa upp eða dusta til eins og kári. í fám orðum sagt, lund vor er ill, af því að ekki var tekið í taumana og hún löguð, á meðan hún var ljett og gjúp og eigi full mótuð. Gömlu Rómverjar sögðu: »Þú skalt lifa fyrir annan, ef þú vilt lifa fyrir sjálfan þig«. Þeir höfðu þegar sjeð, að þetta var Iögmál lífsins. Ef vjer aðeins hugsum um, að sjálfum oss líði vel, en hirðum eigi um aðra, þá líður oss ajdrei vel. En ef vjer hættum því og förum að hugsa um veliíðan annara, þá er sem bergmáli endurómar gjörða vorra frá þeirra hjörtum svo unaðsþýðir og ljúfir, sem vekja samúðaryl í brjóstum vorum. Þá er sem guðsríki sje komið til vor hjer á jörðu; — Ef heimilismenn eru samtaka um að reyna að laga lund sína, vinna þeir að

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.