Hlín - 01.01.1921, Side 60

Hlín - 01.01.1921, Side 60
58 Hlin gagnsemi heimilisins og Ijetta byrði þess. Pótt straumar tímans andi að oss kuldablæ í dag, er ekki vonlaust um hlýjan sólskinsdag á morgun. Þótt stundum byrgi sólu skuggaský, og skæður virðist ríkja myrkrakraftur, þá dugir ekki að drepast fyrir því, nei, dirfstu að lifa þar tii birtir aftur. S. /. /. Guðjinna Stejánsdóttir, Daigeirsstöðum, V.-Húnavatnssýslu, Æskuminningar. Jeg býst við, að flestir íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, kannist við nafn Björns Jónssonar, ísa- foldarritstjóra (síðar ráðherra), en mörgum hefur þótt leitt, að fáar frásagnir eru til um foreldra hans. Hvaðan hafði hann sinn mikla dugnað og gáfur? Hvernig var uppeldi hans og heimilishættir hjá foreldrum hans? Þessar og þvílíkar spurningar hafa margoft verið bornar upp fyrir mjer. Til þess nú að reyna að svara þeim, hef jeg, fyrir tilmæli vina minna, látið til leiðast að tína saman þessa mola, sem jeg nefni æskuminningar. t*ær verða í molum, því jeg hef aðeins fyrir mjer barnsminni, sem þó ekki nær nema yfir 10 ára tímabil, því 15 ára misti jeg báða foreldra mina. Faðir minn tók við jörðinni Djúpadal í Barðastranda- sýslu af föður sínum, jóni Arasyni. (Einar skáld Hjör- leifsson hefur í Andvara 1913 rakið ætt okkar). Jörðin var lítil og erfið, en landskostir ágætir. Afi minn hafði búið þar allan sinn búskap og bætt jörðina á margan hátt,

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.