Hlín - 01.01.1921, Page 67

Hlín - 01.01.1921, Page 67
Hlln 65 þegar við urðum nauðug viljug að inna þessi störf af hendi eða fá ekkert frí. — Um þessar mundir stofnaði faðir minn lestrarfjelag í samráði við nokkra bændur í sveitinni, og var sjálfur lífið og sálin í þeim fjelagsskap — og náttúrlega bóka- vörðurinn. Hann smíðaði stóran skáp til að geyma í bækurnar og fengum við börnin frjálsan aðgang að honum. Mjer fanst þetta litla bókasafn varpa nýju ljósi yfir heimilið. — 6 — 7 ára gömul vorum við sæmilega læs, og þegar nýju bækurnar komu lásum við á kvöldin fyrir heimilisfólkið. Guðrún systir lagði drjúgan skerf tll bókakaupanna og Ias mikið, þau systkinin voru mjög bókhneigð og töluðu um þau efni, er þau lásu, og naut heimilisfólkið fróðleiks og skemtunar af því. — Mest vóru það íslendingasögur, sem við lásum fyrst í stað, svo fjölguðu bækurnar, én það var ilt að ná í þær, póstgöngur strjálar, en oft voru bóksalar á ferð, hálf- gerðir flakkarar, af þeim var mikið keypt. Alþingistíðind- in voru keypt og höfðum við snemma gaman af að fylgjast með í því, sem þar gerðist. Áður en bækurnar komu höfðum við fátt til skemt- unar og mjög takmarkaðan frítíma, samt áttum við ofur- lítinn leikvöll, það var stór hóll efst í túninu. Mjer fanst Guð hafa skapað hann aðeins handa okkur, og hann var ókkur jafnómissandi á öllum tímum ársins, enginn hafði not af honum nerna við krakkarnir. Aldrei var svo mikil fönn í Djúpadal að hóllinn stæði ekki upp úr og myndaðist þá af honum ágæt skíðabraut. Að vetrinum var það okkar bezta skemtun að fara á skíðum, þau yngri voru á sleðum. Á sumrin höfðum við þar gott næði, þegar við máttum ekki velta okkur í grasinu. Ekki vor- um við iðjulaus á hólnum okkar, við höfðum þar stór- bú á barnavísu, þurftum sífelt að byggja hús, alt var þar eins og hjá öðru fólki: fjárhús, fjós, hesthús, auð- vitað var allur búpeningurinn skeljar, þegar best Ijet 5

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.