Hlín - 01.01.1921, Side 77

Hlín - 01.01.1921, Side 77
Hlin 75 en það var ekki Iengi, þvi í maí andaðist hún. — Áður en hún dó kvaddi hún alla á heimilinu og áminti okkur börnin um að ákalla Guð í bæninni og missa ekki traust- ið á honum og huggaði okkur með því, að allir hlutir yrðu okkur til góðs, ef við elskuðum Guð. — Guðrúnu systur bað hún fyrir okkur, enda var hún okkur sem móðir, meðan við fengum að njóta hennar. Sömuleiðis bað hún stúlkurnar að yfirgefa okkur ekki. Pannig var alt undirbúið, að við gætum haldið áfram að búa. Þrátt fyrir miklar þjáningar hafði þessi ástríka móðir umhyggju fyrir okkur til síðustu stundar. — Ekki þorðum við annað en að tilkynna fyr á minstum ráðamanni lát móður okkar og hann kom hið bráðasta, og sjálfsagt fanst honum að halda dýrlega veislu, erfisdrykkju, og í kaupstaðinn varð að senda eftir ölfönguin, þeirra mátti ekki ári vera. — Að jarðarförinni Iokinni var svo sest að sumbli, og fanst okkur Sveini þetta alt svo óviðfeldið, að við gátum ekki komið þar nærri, Guðrún systir sá um alt; við fórum út á tún og grjetum. Að endaðri erfisdrykkjunni tók ráðamaðurinn okkur tali og spyr hvað við hugsum um framtíðina, hvort okkur langi til að halda áfram búskapnum og játuðum við því. Hann segir að við verðum þá að ganga að þeim kost- um sem ráðsmaðurinn setji, en það voru fyrir mig þeir ókostir, sem jeg harðlega neitaði að ganga að. — F*ess- ari óhlýðni var hengt með því, að jörðin, sem við áttum, var tekin af okkur og hún bygð öðrum. — Svóna var þessu friðsæla heimili sundrað, svo börn og hjú urðu að hrekj- ast sitt í hverja áttina. Óumræðilega þótti ókkur sárt að þurfa að skilja, én svo varð nú að vera. Skeð getur, að Björn bróðir hefði eitthvað úr ráðið, ef hann hefði verið heima, en hann var þá kominn í skóla og vissi Iítiðum þetta. Foreldrar mínir voru bæði jafngömui, giftust tvítug, áttu 12 börn og dóu fertug. Ingibjörg Jónsdóttir, frá Djúpadal.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.