Dvöl - 01.07.1938, Side 18

Dvöl - 01.07.1938, Side 18
176 DVÖL í rauninni voru þau þrengri en sum hinna, en nú var þolinmæði afgreiðslumannsins þrotin og hann sagði hálf önugur: „Þau eru nú að v-ísu dálítið þröng, en ég held þau dugi. Vilj- ið þér ekki gjöra svo vel að líta á yður í speglinum?“ „Ég þakka fyrir“, öskraði pró- fessorinn. „Þér eruð sem sagt hættir að hafa gaman af þessu — þessum erfiðleikum — þessum vandræðum!“ Afgreiðslumaðurinn kinkaði glottandi kolli um leið og hann hvarf út úr dyrunum með ellefu kjólföt í fanginu. „Þetta er alveg ótrúlegt“! livæsti prófessorinn og rauk á fætur. Hann stundi þegar hann reyndi að hreyfa armana. Hann gekk að borðinu og leit á hið skrautlega boðskort, sem honum hafði verið sent, og svo stundi hann aftur. Klukkan 8 þurfti hann að vera kominn á heimili brúðurinnar í skrauthýsið „Milano“. Þangað var 20 mínútna gangur. Og nú var klukkan 15 mínútur gengin í 8. Gamla ráðskonan, sem hafði fylgt afgreiðslumanninum út, kom pú aftur inn í stofuna. „Komið þér hérna!“ æpti prófessorinn á móti henni. „Viljið þér gjöra svo vel og reyna hvort þér gelið hengt migí í þessu slifsi?“ „Gætilega herra! Farið þér gætilega. Varið yður á flibbahorn- unum“. Ráðskonan þurrkaði sér vand- lega á vasaklútnum sínum og svo byrjaði hún verkið með titrandi höndum. í fimm mínútur var þögn. Það var eins og prófessorinn, ráðskonan og öll stofan stæði á öndinni af eftirvæntingu yfir því hvernig þetta mundi takast. „Búið?“ „Æ, — æ — æ — “ stundi ráðs- konan. Prófessor Gori stökk æpandi upp af stólnum. „Hættið! Ég vil reyna sjálfur! Ég þoli þetta ekki lengur!“ Þegar liann sá sjálfan sig í speglinum varð hann svo æðis- genginn ,að aumingja gamla ráðs- konan fölnaði af skelfingu. Hann hnikkti sér ofurlítið á- fram, en þá brakaði og brast í öll- um saunuim og löfin byrjuðu að losna. Svo snarsneri hann sér við eins og köttur, sem eitthvað er bund- ið við rófuna á, en þá — rastsj — rifnaði baksaumurinn neðan frá og upp á herðar. Nú varð prófessorinn bandvit- laus. „Ó, það er bara saumurinn. Það er bara saumurinn", stundi ráðs- konan hughreystandi. „Ef þér far- ið úr fötunum skal ég sauma þetta saman aftur“. „En ég hefi engan tíma til þess!“ hrópaði prófessorinn ör- vinglaður. „Ég kem of seint! Ég verð að fara!“ 1

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.