Dvöl - 01.07.1938, Blaðsíða 80
238
D V Ö L
kr., og að síðustu var það al-
mennt 12 krónur á viku. Kaupa-
menn höfðu að sjálfsögðu ókeypis
fæði og skinnklæði. í aflatregðu-
vorum um aldamótin, er kaup-
gjaldið var orðið tiltölulega hátt,
töpuðu margir á kaupavinnunni,
einkum innar í Djiipinu. Biðu
sumif efnalitlir útgerðarmenn þess
aldrei bætur.
Fyrst framan af var aðeins að
ræða um sölu á fullverkuðum
fiski. Djúpsmenn sumir, einkum
þeir úr Mið-Djúpi, fluttu þá fisk-
inn heim til sín undir vertíðarlok-
in og þurrkuðu hann þar. Inn-
djúpsmenn, svo og ísfirðingar,
fluttu fisk sinn iil kaupmanna á
Tsafirði, er verkuðu hann fyrir á-
ákveðna borgun. Verkunarlaunin
voru um mörg ár hin sömu: 3
krónur skippundið.
Um 1895 tók Ward hinn enski
að kaupa léttverkaðan smáfisk, er
lengi síðan var jafnan nefndur
Ward-fiskur, en síðar „Labrador-
fiskur" og heldur því nafni enn-
þá. Sá fiskur var einatt verkaður
samhliða róðrunum seinni part
vors. Þóttu það mikil viðbrigði
og góð, að geta þannig losnaðvið
mikið af fiski sínum strax að vor-
inu, og fá hann greiddan í pen-
ingum samstundis. Þá má og í
þessu sambandi nefna Kaupfélag
ísfirðinga, sem hóf víðtæk fisk-
kaup, jafnframt vörusölu, laust
fyrir 1890, en starfsemi þess heyr-
ir ,að öðru leyti til verzlunarsögu
héraðsins á þessum árum.
Seint á ferðinni.
Pess var getið síðast, að verða
myndi nokkur dráttur á útkomu 3.
heftis Dvalar, vegna fjarveru ritstjór-
ans. Loksins kemur það þó, og verð-
ur nú bráðlega byrjað á prenfun 4.
heftis. Bréfum þeim, sem Dvöl hafa
borizt í sumar, verður reynt að svara
eins fljótt og unt er, og eins verða
kvittanir sendar þeim mörgu skilsömu
kaupendum, sem sent hafa andvirði
yfirstandandi árgangs.
Allinargir vinir Dvalar hafa sent
henni nýja kaupendur og er þessa dag-
ana verið að senda það, sem pantað
hefir verið. Ef einhverjir fleiri vinir
Dvalar ætla að senda henni nýja á-
skrifendur að yfirstandandi árgangi,
ættu þeir að gera það sem fyrst, þvi
alltaf er hættan á að einstök hefti
þrjóti. Og þeir, sem éiga talsvert af
Dvöl, en vantar inn í hana, ættu ekki
að draga lengur að fá sér það. Það
munu nokkuð margir vera sammála
um, að Dvöl frá byrjun muni aukast
að verðmæti þegar fram líða stundir.
Leiðréttingar
við „Brot úr kvæði um Þyrnirós", í
síðasta hefti:
1 4. erindi 3. vísuorði: heyrast, á
að vera: heyrdust. í 6. erindi, 6. vísu-
orði: börðust þeir um, á að vera: börð-
ust þeir viö. í 11. erindi, 3. vísuorði:
liggja og finna, á að vera: liggja oy
fiim, og í seinasta crindi, öðru vísu-
orði: lirópið, á að vera: hrápad.