Dvöl - 01.07.1938, Blaðsíða 79

Dvöl - 01.07.1938, Blaðsíða 79
DVÖL 237 um 1880—1890, og áður fyrr fáír sem engir. En eftir 1890 voru þær hjá hverri skipshöfn. Hinar rösk- ustu fanggæzlur önnuðust ofttvær skipshafnir, er þær voru í sömu verbúð. — Fanggæzla matreiddi fyrir skipverja, þvoði oftast vett- linga þeirra og sokka, og bætti stundum, en annaðist ekki þvott né viðgerð á fatnaði þeirra að öðru leyti. Fanggæzlan var að nokkru .leyti ráðin upp á hlut eins og skipshafnirnar. Hún fékk á- vallt í kaup stærsta fiskinn úr róðri, ef aflinn var innan við 100 fiska á bátinn, annars einn fisk vænan úr luandraði hverju og broti úr hundraði. Útgerðarmaður annaðist verkun á fiski fanggæzlu og lagði til salt, en oft mun hún hafa tekið þátt í þurkun fisksins af bátnum í notum þess. Auk þessa kaups hafði og fanggæzla ókeypis kaffi, grauta og nýjan fisk ásamt skipshöfninni. Afíaskipti og aflasala. Aflaskipti og aflasala máttu heita í föstum skorðum í Bolungavík um langt árabil, og í aðalatriðum hin sömu og í öðrum veiðistöðvum við fsafjarðardjúp. Á sexæringum var skipt í níu staði. Formaður tók tvo hluti, há- setar sinn hlutinn hver, og báts-- eigandi tvo hluti, fyrir bát og veiðarfæri. Á fjögramannaförunum voru fjórir menn á þeim minni, en fimm á stærri bátunum. Hluta- skiptatilhögunin var þar hin sama og á sexæringunum. Var skipt í sjö staði í hinum fyrrnefndu, en átta staði á síðarnefndu bátunum.. Svo höfðu og hásetar einafiskilóð, „stúfinn^ svonefnda, stundum var þetta ein lóð merkt ,er e;ndast skyldi vertíðina, en hjá öðrum var það ein lóð í legu, og kusu þá hásetar um ,oftast áður en byrjað var að draga, hver lóðin í röðiuni skyldi vera „stúfur“. Fyrir stúf- fiskinn keyptu hásetar sér einatt sykur, en stundum var hann líka notaður til sameiginlegs vínglaðn- jings í lok vertíðarinnar. Oftast var allur fiskur bátsins saltaður í einu lagi, og fóru þá fullnaðarskipti tigi fram fyrr, en fiskurinn var seldur fullverkaður að sumrinu. En fyrir kom þó, að hásetum var skipt sér hlut sínum í fjöru, og ávallt var það siður, er skipsrúmslausir menn fóru í Jegu í forföllum cinhvers háseía. Skömmu eftir 1890 ’ var tekið að ráða menn í skipsrúm fyrir fast kaup, sérstaklega á vorver- tíðinni. Sjaldan eða aldrei mun þó öll skipshöfnin hafa verið á kaupi, en um og eftir aldamótin tíðkað- ist kaupgjald háseta mikið, bæði í Bolungavík, Hnífsdal, Mið-Djúpi og Snæfjallaströnd. Voru það að- allega utanhéraðsmenn, Stranda- rnenn, Húnvetningar o. fl., er sótt- ust eftir föstu kaupi, frekar en óvissum hlut. Kaupgjald varfyrst einungis 6 krónur á viku, síðar kömst það í 8 krónur, þá í 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.