Dvöl - 01.09.1944, Page 67

Dvöl - 01.09.1944, Page 67
DVÖL 209 Gitanó horfð'i grafkyrr ofan á diskinn sinn. „Það er leitt að við getum ekki haft hann,“ sagði frú Tiflín. „Enga vitleysu," sagði Karl gramur. Þegar búið var að borða fóru þeir Karl, Billi Búkk og Jói inn i dag- stofu til að sitja um stund, en Gitanó gekk gegnum eldhúsið og út um bakdyrnar án þess að kveðja eða þakka fyrir sig. Jói sat og horfði á föður sinn í laumi. Hann vissi, að faðir hans var í illu skapi. „Það er allt fullt af þessum gömlu pesönum,“ sagði Karl viö Billa Búkk. „Þeir eru skrattans ári góðir karlar,“ sagði Billi þeim til varnar. „Þeir geta unnið miklu eldri en hvítir menn. Ég hef séð einn, sem var orð- inn hundrað og fimm ára, og hann gat enn setið á hestbaki. Og hvenær sér maður hvítan mann á aldur við Gitanó ganga tuttugu til þrjátíu mílur?“ „Já, þeir eru seigir, það veit ég,“ samsinnti Karl. „En tekur þú svari hans líka, ha? Ég skal segja þér, Billi, ég á nógu bágt með að halda kotinu fyrir Ítalíubanka þó að ég fjölgi ekki á fóðrunum. Þú veizt það, Billi,“ „Ég fer nærri um það,“ sagði Billi. „Ef þú værir ríkur, það væri annað mál.“ „Það er satt. Og hann er svo sem ekki frændlaus, mágur hans og systursynir hérna í Monterey. Hví skyldi ég gera mér rellu út af honum?“ Jói sat þögull og hlustaði, og honum var sem hann heyrði hina þýðu rödd Gitanós og hin óræku orð hans: „Ég fæddist hér.“ Gitanó var dularfullur eins og fjöllin. Þar kom einn kamburinn eftir annan eins hátt og séð varð, en bak við efstu brúnina sem gnæfði viö himinn var stórt ókannað land. Og Gitanó var gamall maður þangað til kom aö hinum dökku dauflegu augum. Og bak við þau var eitthvað dulið. Hann talaði aldrei svo mikið að hægt væri að ráða í hvað inni fyrir væri; að baki augnanna. Jóa fannst hann vera dreginn ómótstæðilega út að skálanum. Hann stóð upp úr stólnum meðan faðir hans hélt áfram að tala og hvarf hljóðlega út úr dyrunum. Nóttin var koldimm og fjarlæg hljóð bárust glöggt að eyrum hans. Yfir um hæðina, utan af veginum heyrðist ómur frá vagnbjöllum. Jói lagði leið sína yfir dimman garðinn. Hann sá, að það var ljós í glugg- anum á litlu stofunni i skálanum. Af því að nóttin var full leyndar- öóma gekk hann varlega upp að glugganum og gægðist inn. Gitanó sat í ruggustólnum og sneri baki í gluggann. Með hægri hendinni strauk hann hægt yfir eitthvað sem lá í keltu hans. Jói ýtti upp hurðinni og gekk

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.