Dvöl - 01.09.1944, Qupperneq 75

Dvöl - 01.09.1944, Qupperneq 75
Ö VÖL 217 Að lokum má láta þess getið, að þýð- ing Maju Baldvins er liðlega af hendi leyst. Ytri frágangur bókarinnar er og hinn sæmilegasti eins og raunar flestra bóka Pálma H. Jónssonar og Prentverks Odds Björnssonar sér í lagi. H. S. Þórir Bergsson: Nýjar sögur. Útg.: ísafoldarprentsmiðja h.f. Reykja- vík 1944. Þórir Bergsson er höfundur, sem ekki þarf að kynna, — þjóðin þekkir hann, jafnvel þótt hann klæðist dulargervi. Hann hefur ritað allmikið — einkum smásögur — og orðið vinsæll höfundur. í bók þeirri, er hann lætur nú frá sér fara, eru tuttugu smásögur. Sumar þeirra hefur maður séð áður á víðavangi blaða og tímarita, en aðrar eru nýir gestir, og þær eru fleiri. Þessar tuttugu sögur eru allsundurleitur hópur; sundurleitur að lengd, gerð og gæðum. Lengsta sagan í bókinni er „Útverðir mannheima." Það er átakanleg saga, þrungin magni grimmra örlaga. Það er hetjusaga og baráttusaga barnanna, sem náttúra norðurhjarans hefur alið. Það er sagan um stofninn, sem „bognar aldrei — brotnar í bylnum stóra seinast." Þetta er góð saga, sögð af skilningi og samúð. Þó er hún ekki bezta sagan í bókinni og ýmislegt má að henni finna. Bygging hennar er frem- ur lausleg og þar eru dregnar ýmsar myndir, sem ekki hnitmiðast við aðal- inntak sögunnar. Hún er full löng. Því verður ekki neitaö, að í bók þessari eru sögur, sem ætla mætti aö Þórir Bergsson hefði getað skrifað betur. Sag- an „Nýr maður“ er fremur fátækleg og sviplítil — minnir svolítið á mynd af sviplitlu landslagi í slæmu skyggni. „Lítil saga um líf og dauða“ er ofurlítið svip- leiftur samtíðarkvenna, ekki svo ólikinda- tegt, en þegar lestri er lokið, er maður ofurlítið vonsvikinn — einna líkast því, er einhver kunningi segir manni skrítlu, sem enginn rúsína er í, þegar til kemur. Þær eru þó miklu fleiri sögurnar í þessari bók, sem segja má um, að séu vel gerðar og margar ágætlega. Mér finnst „Kveikur" vera bezta sagan í bókinni, — sagan um stríðið og gömlu konuna, sem ekki gat fengið kveik í olíuvélina sína, fyrr en stríðið væri búið. Þetta er sterk saga og næmi höfundarins á mann- leg viðhorf til lífsins nýtur sín barna ágætlega. Gamla konan er heilsteypt persóna, eðlileg og raunhæf, en þó sér- stæð og sérkennileg, eins og hver og ein lifandi vera. Prásögnin er fleyg og ilmandi og flötur sögunnar hæfilega stór til þess að gefa og beina sýn í líf og lífs- viðhorf þessarar gömiu og góðlátlegu konu. Við þekkjum þessa konu úr lífinu, en höfum kannske ekki veitt henni ja.fn nána athygli og höfundur þessarar sögu. Þá er sagan „Gróði“ ágæt. Hún er um tvö börn — lítinn dreng og gamlan mann, — sem lífið leiðir saman, og samvistirnar veita báðum gleði og fyllingu. Þetta er hugðnæm og fögur saga um afagleðina, sem á svo djúpar rætur í hjörtum gam- alla manna og viröist sterkust hjá þeim, sem engin barnabörn eiga. Það var næmt af höfundi að velja barnlaust gamalmenni til að túlka þessar mannlegu kenndir. Þórir Bergsson er allsérstæður höf- undur, og eigi leikur á tveim tungum, að hann er nú meðal fremstu smásagna- höfunda okkar íslendinga. Styrkur hans er fólginn í næmum skilningi á atvikum og viðburðum í lífi manna, og áhrifum þessara fyrirbæra á líf einstaklinganna. Hann er nærfærinn og nærgætinn um eðlileg viðbrögð manna undir ákveðnum kringumstæðum. Hann er skyggn á mann- gerðir og tekst oft að leiða fram eðli- legar en sérstæðar persónur. Stíll hans og mál er ef til vill ekki eins vel þjálfað og skilningur hans á manneskjum. Þó er það með ágætum á stundum og ævin- lega hafið yfir sniðleysi og eftirlikingar,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.