Dvöl - 01.01.1946, Síða 4

Dvöl - 01.01.1946, Síða 4
2 DVÖL til heilsu. Auðvitað sagði hann mér, að hann hefði oft orðið vottur að kraftaverki. Einmitt þessum sjúkdómi væri stundum svo háttað að hann stöðvaðist, lokun og afturbati kæmi jafnvel, þegar verst sýndist gegna.. En ég trúi ekki á kraftaverk. Köster svaraði engu. Við sátum þögulir hlið við hlið. Hvað áttum við lika að segja Við áttum báðir of margvíslega reynslu að baki til þess, að okkur væri nokkur leið að freista huggunar. — Hún má ekki verða neins vör, sagði Köster loks. — Nei, skiljanlega, svaraði ég. Við sátum hreyfingarlausir, þangað til Patt kom. Ég hugsaði ekki neitt, var ekki einu sinni örvæntingarfullur, aðeins sljór, grár, lífvana. — Halló! Patt kom veifandi til okkar. Hún var ögn reikul í spori og hló. Ég er dálítið ölvuð. Af sólskininu. Alltaf þegar ég tek mér sólbað, vagga ég svona eins og gamall sjóari. Ég horfði á hana og skipti um skoðun í einu vetfangi, trúði ekki lengur á lækninn, heldur kraftaverkið. Þarna stóð hún. Hún lifði. Hún stóð þarna og hló — allt annað vék á brott. — Hvaða upplit er á ykkur? spurði hún. — Borgarupplit, svaraði Köster, sem alls ekki á við hér. Við erum ekki orðnir sólaðir ennþá. Hún hló. — Það er sæludagurinn minn í dag. Enginn hiti. Ég má vera úti. Eigum við að labba til þorpsins og fá okkur einn lystaukandi? Köster stakk upp á, að við færum akandi á sleða þangað niður eftir. Við veifuðum á ökuþór og fórum eftir skástígunum, sem lágu til þorps- ins. Við staðnæmdumst fyrir framan gildaskála með sólríkum hjalla og stigum af sleðanum. Þar sat fjöldi fólks, og meðal þess kannaðist ég við nokkur andlit frá hælinu. ítalinn úr barnum var þar einnig. Hann nefndist Antoníó og kom að borðinu okkar til þess að heilsa upp á Patt. Hann sagði okkur frá því, að nokkrir gárungar hefði í nótt hjólað rúmi sofandi sjúklings inn í stofu ævagamallar kennslukonu. Sá var orðinn heilbrigður og átti að fara eftir nokkra daga. Þá er föst venja að gera svona sprell, sagði Antoníó. — Á þennan hátt fsér það útrás, sem eftir er af hálfkæringnum, ljúf- lingur, bætti Patt við. — Já hér verður maður aftur barn, sagði Antoníó. Heilbrigður, hugsaði ég. Sá heilbrigði, sem fer aftur. Hvað viltu helzt drekka, Patt? — Einn martíní. Einn ómengaðan martíni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.