Dvöl - 01.01.1946, Qupperneq 15

Dvöl - 01.01.1946, Qupperneq 15
DVÖL 13 um skrokkinn fyrst, og hann var þrír sentimetrar, fálmararnir hins vegar, sem sveigðust í stórum bog- um upp og aftur, voru akkúrat helmingi lengri. Höfuð pöddunnar var mjög stórt og í laginu eins og jafnhliða þríhyrningur, þar sem einu horninu er snúið beint niður, augun útstæð og glitrandi, þó hún væri dauð. Hún var svört á lit og hafði sex öflugar lappir, með tvær klær á hverri löpp. „Hvar fannstu þetta?“ spurði ég, þegar bráðabirgðarannsókn þess- ari var lokið, „hvar í ósköpunum grefur þú upp svona ófreskju?" Hann benti á mótorinn. „Þarna,“ svaraði hann. „Hún lá á stöplin- um, sem mótorinn stendur á, en það er svolítil ammoníakdeigla á honum og þar hefur hún álpazt út í, og það hefur riðið henni að fullu.“ ,Hún er af bjölluættinni, það bregzt mér ekki,“ sagði ég og virti fyrir mér líkið. „Vængjalaus, sex- fætt. Og hvert þó í heitasta er að sjá á henni kjaftinn, — alveg eins og naglbítur, og eiturbroddur og hvað eina. Þetta held ég að sé nú ljóti morðinginn í ríki skordýr- anna. Ég hugsa jafnvel, að hún geti orðið fullhættuleg fuglum, ef ekki enn stærri dýrum.“ „Til dæmis mönnum “ spurði hann. „Já, þú mátt reiða þig á, að hún vílaði ekki fyrir sér að ráðast á menn, ef svo bæri undir. Og það GUÐMUNDUR DANÍELSSON, er fæddur 4. okt. 1910 í Guttormshaga í Rangárvallasýslu. Hann er nú kenn ari á Eyrarbakka. Guðmundur hefur verið afkastamikill rithöfundur og liggur eftir hann fullur tugur bóka. Pyrstu bók sína „Ég heilsa þér“, gaf gaf hann út 1933, og var það ljóða- bók. Síðan hefur hann að mestu helg- að sig skáldsagnagerð, og hefur ritað allmargar skáldsögur, og sumar all- viðamiklar. Má nefna þessar: Ilmur daganna, Gegnum lystigarðinn, Á bökkum Bolafljóts, Af jörð ertu kom- inn, Sandur og Landið handan lands- ins. Auk þess hefur hann ritað all- margar smásögur, er birzt hafa í blöð- um og tímaritum, og eitt smásagna- safn hefur komið út eftir hann og nefnist það „Heldri menn á hús- gangi. — Nokkuð af ljóðum hefur birzt eftir hann á seinni árum á víð i og dreif. — Guðmundur dvaldi í | Ameríku nokkurn hluta síðasta árs. væri ekki gott að forðast hana, því hún sefur á daginn, en fyllist blóð- þorsta með kvöldinu og fer á veið- ar, þegar svartamyrkur er komið og enginn sér út úr augunum.“ „Hvernig veiztu þetta?“ spurði mótoristinn. „Úr því paddan er út- lend, og þú þekkir hana ekki, hvernig getur þú þá vitað um hátt- erni hennar?“ „Sjáðu þessa,“ sagði ég og benti á fálmarana. „Hvað hefði hún að gera við þessi ofboðslegu löngu þreifitæki, ef hún væri ljóssins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.