Dvöl - 01.01.1946, Page 29

Dvöl - 01.01.1946, Page 29
DVÖL 27 Benedikt Gíslason, frá Hofteigi: Mér varst þú hinn mildi drengur meðan ég var kát og rjóð. Þú varst einnig, eins og gengur, öðrum meyjum vonafengur. Báru þœr þig í sœlusjóð. Þú fórst annan veg en vildir, villtist inn á glapastig. Við mig svo í váum skildir, var það kannske eins og gildir einu, fyrst ég elska þig. Vildi ég þig verja falli, vekja hjá þér kraft og þor. Lyfta þér svo stall af stalli, standa svo á hæsta fjalli útsýnis, um œvispor. Fingur spila forlaganna furðulega margan brag. A œvihörpu okkar manna eiga þeir, sem dœmin sanna, einrœði, um óð og lag. Niðri’ i skuggadalnum dvel ég, dauðans unz ég festi blund. Minning þinnar ástar el ég, okkar gleðistundir tel ég upp, með háum harmi í lund. Við svo búið verður hlíta, ven ég mig á gleðibrag. þó ég verði að sakna og sýta, og síðan aldrei meir að líta, glaðan eða góðan dag. Varð ég' svona i veröldinni vonaland að kveðja mitt. Engum jarðar seimi ég sinni svona er að bera æ í minni. Bœði lík og lífið þitt.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.