Dvöl - 01.01.1946, Síða 35
DVÖL
33
ÚRSLIT VERÐLAUNASAMKEPPNINNAR
Kúri Tryggvason Valborg Bents
Þátttakan í verðlaunasamkeppni „Dvalar" um feröasögur varð mjög góð. Bárust
alls um 20 ferðasögur og margar góðar. Um ferðasögurnar dœmdu — auk ritstjóra
Dvalar — þeir Jón Helgason, blaðamaður og Þórir Baldvinsson, byggingarfrœðingur,
báðir fyrrverandi ritstjórar Dvalar. Nokkrar þessara greina reyndust þó ýmist of
stuttar eða langar til þess að koma til greina i samkeppninni. Dómnefndin taldi enga
ferðasöguna skara svo fram úr, að henni bæri tvímœlalaust fyrstu verðlaun og varð
sammála um að leggja þœr tvœr ferðasögur, er hún taldi beztar, að jöfnu og skipta
verðlaunauppliœöinni, kr. 500.00, á milli höfunda þeirra. Þessar greinar voru „Ferð
til Krísuvíkur" og „Gönguferð um Hornstrandir". Reyndist liöjundur hinnar fyrri
vera Kári Tryggvason, Viðikeri, Bárðadal, S.-Þing., en hinnar síðari Valborg Bents,
Barónsstíg 25 Reykjavík. Birtist önnur ferðasagan í þessu hefti, en hin mun birtast í
næsta hefti. Þakkar ritið þessum höfundum sögurnar, svo og öllum öðrum, er þátt
tóku í þessari samkeppni. Getur svo farið að fleiri þessara ferðasagna verði birtar
síðar með leyfi höfunda. Þó geta þeir, ef þeir óska þess, fengið handritin endursend,
ef þeir gera ritinu aðvart bréflega.
Eins og getið var í 2. hefti 1945 mun nú verða efnt til
ntjrrar verðlaunusamheppni
og er verkefnið, Endurminning- úr síidinni. Skulu greinarnar hafa borizt ritinu fyrir
1. nóv. 1946. Að öðru leyti eru skilmálar allir hinir sömu og í hinni fyrri samkeppni
og getið er í 2. hefti Dvalar 1946, bls. 112. — Skulu greinarnar vera merktar dulnefni,
en liið rétta nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi. Verðlaun verða kr. 500.00 og
eiga greinarnar að vera 6—10 Dvalarsíður að lengd.