Dvöl - 01.01.1946, Page 47

Dvöl - 01.01.1946, Page 47
DVÖL 45 „Ég verð að vera heiðarlegur og segja honum að mest af þessu sé prentað áður,“ sagði Sivle. En vinur hans var samvizkulaus persóna, og á þessu augnabliki hugsaði hann ekki um neitt annað en að útvega Sivle ævintýralega há ritlaun. Það var einkamál útgefandans, hvort hann tapaði eða græddi á viðskiptunum. „Nú verður þú svo vingjarnlegur að halda kjafti meðan kaupin ger- ast,“ sagði hann. „Ég held að öruggast sé að segja, að þú sért mállaus, mállaus og heyrnarlaus." „Áfram í smérið,“ sagði Sivle. Herra Eiricksen var risavaxinn maður, kurteis og formfastur, ætíð klæddur marglitu vesti og svörtum síðfrakka. Hann gekk allt af með vindil í munnvikinu. Þegar vinur Sivle kom inn til hans, var hann að snuöra í bókahillu í geymslusal sínum. „Nú megið þér treysta því, að ég hef náð í stórskáld handa yður til að gefa út.“ „Mjög vingjarnlegt af yður,“ sagði herra Eiricksen og blés reykjar- skýi út í loftið. „Er það Björnson?“ „Nei, rækallinn. Það er nokkuð enn þá betra. Það er Sivle, Pétur Sivle. Já, þér þekkið hann auðvitað. Þér hafið lesið hann?“ „Auðvitað," sagði herra Eiricksen. Hann var ekki sá maður, að hon- um fipaðist þó hann heyrði eitt ókunnugt nafn. „Kom hann hingað með yður?“ „Já, hann situr í fremra herberginu. En eins og þér vitið getur hann ekki talað. Já. Þér vitið það auðvitað úr bókmenntasögunni, að Sivle er mállaus og heyrnarlaus.“ „Auðvitað,“ sagði Eiricksen, og flutti vindilinn yfir í hitt munnvikið. Og herrarnir gengu nú fram í fremri skrifstofuna, þar sem Sivle sat og virtist í þann veginn að rísa á fætur og taka til máls. „Mállaus, algerlega mállaus," endurtók vinur hans og sendi honum þýðingarmikið augnatillit. Sivle kyngdi athugasemd sinni og brosti hik- andi til herra Eiricksens, sem hneigði sig og beygði, hrifinn af þeim sóma, sem honum veittist, að hafa stórskáld innan sinna dyra. „Skilur hann hvað ég segi,“ spurði Eiricksen. „Nei, — ja, ef til vill getur hann lesið af vörum yðar, ef þér talið greinilega.“ Og digri maðurinn í svarta síðfrakkanum með liðaða hárið hristi hönd Sivle og hrópaði með stórfelldum varabrettum: „Ég er ákaflega heillaður af hinum frumlegu ljóðum yðar.“ Sivle kyngdi einhverju, sem hann vildi gjarna hafa sagt. Síðan gengu

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.