Dvöl - 01.01.1946, Page 50

Dvöl - 01.01.1946, Page 50
48 DVÖL Það varð þögn. Pétur starði á vin sinn, starði á seðilinn, hagræddi gleraugunum og starði á ný. Svo gekk hann einu skrefi nær eins og undrið drægi hann að sér, en vék svo ósjálfrátt til baka, eins og hættu- legt kynni að vera að koma of nærri. „Hæ þrælbeinið þitt! Þú ætlar þó ekki að halda því fram, að ég eigi þetta?“ „Pétur! Pétur! Þú getur keypt þér höll. Þú átt hann þennan!“ Það tók nokkurn tíma fyrir Pétur að átta sig á því að þetta væri alvara. En þá hóf hann líka dans. Og það reyndist að lokum mjög erfitt að koma honum með heilan bjór og óbrotna limi niður alla stigana því þá var hann orðinn í því skapi að vilja taka stofuhæðina í einu skrefi. Klukkutíma seinna gekk vinur hans af tilviljun fram hjá Noregsbanka. Og hver ætli standi þar úti fyrir í djúpum hugleiðingum annar en Pétur. Og pappírinn sem hann rýndi svo hugsandi ofan í var stóri seðillinn hans. „Nei, ert þú hér“ sagði hann. „Já hvort sem þú trúir því eða ekki, þá er hann ófalsaður.“ „Fórstu í sjálfan Noregsbanka til að spyrja að því?“ „Þetta er svo lýgilegt," sagði Pétur. „Og aldrei er of varlega farið.“ Síðar um daginn rakst vinur hans á hann sitjandi flötum beinum á Karli Jóhanni. Hann hallaði hattinum út í annan vangann og söng. í fanginu hafði hann körfu með fjórum hænuungum, sem hann hafði keypt af bónda fyrir hundrað krónur. „Því að bóndinn er mergur þjóð- arinnar,“ sagði hann, „og þarfnast styrktar, og við ríku mennirnir eigum að hugsa eftir því!“ Hve lengi Pétur var ríkur er erfitt að vita. En í hvert skipti, sem hann hitti vin sinn og félaga eftir þetta, hrópaði hann ævinlega: „Þarna er þá myntfalsarinn. Ég get bölvað mér upp á það, að þú býrð til svo sniðuga peninga, að sjálfur Noregsbanki getur ekki haft hendur í hári þínu.“ Bókaútgefandinn varð gjaldþrota. Þórir Friðgeirsson þýddi. Teikningar eftir Jón Einarsson. Á

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.