Dvöl - 01.01.1946, Side 52

Dvöl - 01.01.1946, Side 52
50 DVÖL dyrnar. — Enginn lét til sín heyra. Hjartað barðist um í brjósti mér af unaðslegri eftirvæntingu. H-æ-g-t o-g h-l-j-ó-ð-l-e-g-a opnaði ég dyrnar, og----------Guð minn góður! Á borði, — rétt innan við dyrnar — lágu hinar fögru hárfléttur all- sundurlausar. En í rúmi skammt frá svaf hún, sem flétturnar hafði borið, sneri sér til veggjar, og við mér blasti gishærður hnakkinn. Ég stóð lengi sem þrumulostinn. Svo greip ég í einhvers konar grimmdaræði hárið, snaraði því í ofninn, — og flýtti mér síðan út og heim. Heimkominn þvoði ég mér ræki- lega bæði um hendur og varir, til þess víst að reyna að hreinsa mig af hárinu. Næstu nætur á eftir var ég möru troðinn. En snefill af ást var ekki til í mér. — — Stúlkan varð ekki á vegi mínum fyrr en eftir nokkrar vikur. Og þegar fundum okkar loks bar saman, þá lézt hvorugt okkar sjá hitt. Þó tók ég eftir því með hryll- ingi, að hún hafði engu minna hár en áður, — aðeins dálítið ljósara á litinn. Samt var það ekki svo miklu ljósara, að áðurnefndur keppi- nautur minn kynni ekki að meta það jafn mikils og hið fyrra. Síðan þessir atburðir gerðust hefur verið tilgangslaust fyrir hárprúðar konur að ætla sér að ná ástum mínum. Og fyrir verstu óhöppum, hvort sem er á sjó eða landi, dreymir mig venjulega gis- hærðan konuhnakka eða lykt af sviðnu hári. Um skeið varð það tízka, að kon- ur gengu með drengjakolla. Þá giftist ég konunni minni. Ég þorði þó ekki að nálgast hana — eða réttara sagt að leyfa henni að nálg- ast mig — fyrr en ég var búinn að kynna mér það, að hún fór reglu- lega til hárskera og lét hann klippa sig. Þrátt fyrir breytta tízku, hef ég — enn sem komið er — fengið hana til þess að halda við drengja- kollinum, með því að segja henni, að ég elski hann svo heitt, hann fari henni svo dásamlega vel, og minni mig svo unaðslega á fyrstu samfundi okkar. Þetta gerir hana hamingju- sama. Henni finnst ég — maðurinn sinn — vera svo staðfastur og trygglyndur, — hafa óviðjafnan- lega þroskað og fullkomið tilfinn- ingalif. Þetta er heppilegur skilningur hjá blessaðri konunni, — og fall- egur er hann. Það er bara eitt að honum. Mér finnst stundum, að hann sé gervihár, — ekki á henni, heldur á mér. I

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.