Dvöl - 01.01.1946, Síða 64

Dvöl - 01.01.1946, Síða 64
62 DVÖL hver eftir annan. Fyrst var hún búin að vera gift í sex mánuði, svo í eitt ár, svo í þrjú ár. Áður fyrr hafði hún aldrei þurft að drekka. Þá gat hún setið alla liðlanga nóttina við borð með fólki, sem drakk frá sér vitið, og verið alltaf jafn glög og kvik, án þess að láta leiðast af því, sem fram fór í kringum hana. Ef hún smakkaði vín, var það undantekning frá venj- unni og orsakaði venjulega langar, gamansamar skýringar, en nú réð óttinn gerðum hennar. Eftir sennur var Herbie oft úti alla nóttina, og hún fékk aldrei að vita, hvar hann hélt sig. Þá fann hún til þyngsla um hjartað og sárinda í brjóstinu, og hugur hennar hverfðist eins og þeytispjald. Henni fannst bragðið af áfenginu andstyggilegt. Af gininu — hvort sem það var blandað eða óblandað — varð hún fárveik. Eftir nokkrar tilraunir komst hún að raun um, að skozkt viský var henni hollast. Hún drakk það óblandað, því að með því móti komu áhrifin fyrst í ljós. Herbie hvatti hana til þess að drekka, honum þótti vænt um að sjá hana kennda. Þau héldu bæði, að það mundi kannske færa henni hið góða skap aftur, og þá mundi þeim fara að líða vel saman aftur. „Svona hetjan,“ sagði hann uppörfandi. „Lofaðu okkur nú að sjá þig ofurlítið hýra.“ En það færði þau ekki nær hvort öðru. Þegar hún drakk með honum, var hún fyrst í stað dálítið glaðleg, en svo — eig- inlega án þess að þau vissu hvernig það byrjaði — voru þau allt í einu komin í háa rifrildi. Svo vöknuðu þau morguninn eftir og vissu þá varla um hvað þrætan hafði snúizt, og mundu óljóst, hvað sagt hafði verið eða gert, en voru þó bæði bitur og hatursfull í garð hins. Svo liðu nokkrir dagar í hefnigirni og þögn. En stundum sömdu þau þó í þessum þrætum — og þá venjulega í rúminu. Þá var mikið um kossa og gælunöfn á báða bóga og fullviss- anir um það, að nú væri þessu lokið og nú mundu þau byrja nýtt líf... „Ó, nú skulum við láta okkur líða yndislega saman, Herbie. Ég hef verið andstyggilega vond við þig. Ég hlýt að hafa verið þreytt. En nú verður allt gott aftur. Bíddu nú hægur.“ En nú voru þessar blíðu og ástríðufullu sættir úr sögunni. Þau áttu aðeins vinsamleg samskipti á því skammvinna blíðuskeiði, sem áhrif vínsins sköpuðu áður en meira vín rak þau út í nýja misklíð. Sund- urþykkjan varð enn hatrammari. Illyrði voru hrópuð og löðrungar gefnir, og stundum kom til handalögmáls. Einu sinni fékk hún glóð- arauga. Daginn eftir var Herbie óttasleginn og fór ekki til vinnu sinnar. Hann elti hana á röndum og ráðlagði alls konar kvalastill-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.