Dvöl - 01.01.1946, Síða 65

Dvöl - 01.01.1946, Síða 65
DVÖL 63 andi bakstra og tók alla sökina á sig. En þegar þau höfðu drukkið nokkur glös „til að hressa sig við“, varð henni svo tíðrætt um áverka sinn, að hann missti þolinmæðina, rauk upp og þaut út og var burtu í tvo daga. í hvert sinn, er hann yfirgaf heimilið í reiði, hótaði hann því að koma aldrei aftur. Hún trúði honum ekki, og lét sér heldur aldrei koma skilnað til hugar. Einhvers staðar í heila hennar eða hjarta lifði óljós og fáránleg von um það, að allt mundi breytast og hjónaband þeirra Herbies mundi allt í einu verða rólegt og ham- ingjusamt. Hér var heimili hennar, húsgögnin hennar, maðurinn hennar — hið raunverulega líf hennar. Hún óskaði þess ekki að eiga um tvo kosti að velja. Nú gat hún ekki lengur reikað um í sælli meðaumkun vegna sorga lífsins. Nú átti hún ekki nóg af tárum. Þau tár, sem hún felldi nú, voru öll vegna hennar sjálfrar. Hún ráfaði eirðarlaus um húsakynni sín, og hver hugsun hennar snerist um Herbie. Það var á þessum tímum, sem hræðslan við einveruna náði tökum á henni, og seinna í lífinu gat hún aldrei yfirunnið þann ótta. Það er hægt að vera aleinn, þegar allt er í stakasta lagi, en þegar maður er niðurbrotinn grípur mann skelfing einverunnar. Svo byrjaði hún að drekka ein, aðeins í smáskömmtum en allan dag- inn. Áfengið gerði hana óstyrka og orðilla, aðeins þegar hún var ein með Herbie. Þegar hún var alein, var eins og það sniði vankantana af tilverunni. Hún lifði i eins konar áfengisvímu, og líf hennar varð draum- kennt. Ekkert, sem fyrir kom, snerti hana illa, eða kom henni á óvart Svo flutti einhver ungfrú Martin í íbúðina í hinum enda hússins. Það var stór, ljóshærð stúlka á fertugs aldri, og útlit hennar varaði einmitt við því, sem Hazel var á góðri leið með að verða. Þær urðu brátt kunnugar, og ekki leið á löngu, unz þær voru að heita mátti óaðskiljanlegar. Hazel eyddi dögunum hjá þessari vinkonu sinni. Þær drukku saman til þess að hressa sig viö eftir drykkju næturinnar. Hún trúði ungfrú Martin aldrei fyrir áhyggjum sínum um Herbie. Það var of særandi fyrir hana til þess að hægt væri að finna huggun í því að tala um það. Hún lét skína í það, að starf mannsins hennar krefðist þess, að hann væri mikið fjarvistum. Það þótti ekkert sérstak- lega athyglisvert. Eiginmenn, sem slíkir, komu lítið við sögu i heimi ungfrú Martin. Ungfrú Martin hafði engan sýnilegan lífsförunaut í eftirdragi. Það verður að liggja á milli hluta, hvort hann var dáinn eða ekki. Hún átti einn aðdáanda, sem hét Jói og kom hérum bil á hverju kvöldi til þess
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.