Dvöl - 01.01.1946, Síða 80

Dvöl - 01.01.1946, Síða 80
78 D VÖL telja. Ég hafði lesið þessa bók á dönsk- unni, og er ég las þessa þýðingu fann ég brátt, að margt vakti mér aðdáun, og fór ég þá að bera saman mér til yndis. Þýðingin er nákvœm, en þó laus við allan smámannlegan eltingaleik, djörf og eftirlát í senn. Orðfærið er snjallt, íslenzkt og kjarngott, en þó hvergi leit- að frá efninu, til þess að koma að dá- yrðum þýðandans, en smekklega farið með nýyrði og nýmyndir orða, þótt all- víða sé brugðið við. Rétt er að taka það fram, að þetta er aðeins fyrsti hluti Jökulsins. Það má fullyrðá, að myndarlega sé af stað farið með þetta heimilisbókasafn Helgafells, og er þess að vænta, að síð- ari bindi þess verði ekki lakari. Þó má segja, að fullangt sé gengið í því, að gera litlar bækur stórar og verð bókanna er allhátt, þar sem þetta á að vera bóka- safn handa alþýðu manna. A. K. Dýrheimar: Eftir Rudyard Kipling. — Útg. Snælandsút- gáfan h.f. 1945. Þessi bók er úrval úr „Jungle“-bókum Kiplings, en þær eru, sem kunnugt er meðal frægustu og víðlesnustu barna- og unglinga bóka í heimi. — Hafa þessar bækur verið þýddar á ótal tungumál og orðið efni í fjölmargar kvikmyndir, og hefur þeim hvarvetna verið tekið með hinu mesta dálæti, enda eru þær allt í senn, frábærlega vel ritaðar, skemmtileg- ar og fræðandi. Kipling var fæddur í Indlandi, en þó af ensku foreldri, og átti hann þar heima í æsku. Hann byggði „Jungle“-bækur sínar jöfnum höndum á indverskum þjóð- sögum og kynnum sínum af heimi villi- dýranna. — Bókin er frásögn af dreng, sem elst upp með úlfum — og við- skiptum hans og sambúð við hin villtu dýr frumskóganna. Þetta eru ævin- týralegar frásagnir með bragði ritsnill- ingsins. Þar er sagt frá lífi dýranna, háttum þeirra og venjum, vitsmunum og lífsbaráttu, hættusömum veiðum og hrika- legum viðureignum — efni, sem heillar hvern stálpaðan og heilbrigðan dreng. En þetta er ekki gert með æsingabrag, heldur á sannan og lifandi hátt, svo að bókin er heillandi fyrir hvern, sem fögr- um bókmenntum ann. Gísli Guðmundsson, fyrv. alþingismað- ur hefur íslenzkað bókina og leyst það vandaverk af hendi með ágætum. Er bókin á hreinu íslenzku máli, eðlilegu og tilgerðarlausu, en um leið þróttmiklu og fögru. Er ánægjulegt til þess að vita, þegar slíkum alúðarhöndum er farið um fögur og viðkvæm listaverk. Þó finnst mér nafn bókarinnar, Dýrheimar, full- langsótt og hljómnýtt, til þess að vera eðlilegt og tamt heiti þessarar ágætu bókar í munni ungra íslenzkra lesenda. Margar ágætar myndir prýða bókina, sem er prentuð á vandaðan pappír og öll snyrtileg í sniðum. Ég held að óhætt sé að fullyrða, að þetta sé með allra beztu unglingabók- um, sem út komu hér á landi síðast liðið ár. A. K. Auðlegö og konur: Eftir Louis Bromfield. — Útg. Draupnis- útgáfan 1946. Þetta er löng skáldsaga eftir hinn stór- virka og vinsæla, ameríska rithöfund, Louis Bromfield. Sagan gerist á síðustu árum í stórborgum Ameríku og bregður upp ólíkum myndum hins margbreyti- lega lífs. Þar er lýst viðhafnarlífi mill- jónamæringa og böli skuggahverfa, og má vafalaust gera ráð fyrir, að þar séu margar sannar myndir úr amerísku þjóð- lífi. Bókin getur þó varla talizt stórbrot- ið listaverk, en hún hefur öll einkenni 'vinsællar og skemmtilegrar skáldsögu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.