Valsblaðið - 01.05.1995, Blaðsíða 30
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Ólafur Gústafsson í faðmi fjölskyldunnar, Grétar Már og Kristín
Sigurðardóttir eiginkona Ólafs í sófanum en Ágústa og Steinar Þór á
gólflnu.
Hver er Valsmaðurinn?
„Ein stjóm fyrír
félagið er
heppilegra stjóm-
skipulag”
í nær öllum íþróttafélögum eru ein-
staklingar sem alltaf er hægt að treysta
á, sama hvað á bjátar. Einstaklingar
sem skapa sér ákveðinn virðingarsess
sökum eljusemi, dugnaðar og fómfýsi.
ÓLAFUR GÚSTAFSSON, lögfræð-
ingur, hefur verið ein af styrkustu
stoðum Vals í hátt í tvo áratugi en
hann berst ekki mikið á. Það er lýs-
andi fyrir persónuleika Ólafs, og sýnir
hlýhug hans til Vals hvað best, að
hann greiddi píanóið í Friðrikskapellu
úr eigin vasa án þess að hafa hátt um
það. Við vígslu kapellunnar var
píanóið fengið að láni, því ekki voru
til fjármunir til að kaupa það. Þegar
skila átti píanóinu gat Ólafur ekki
hugsað sér kapelluna án píanós og tók
því af skarið.
Ólafur var tveggja ára þegar for-
eldrar hans fluttu á efstu hæð í
blokkaríbúð við Eskihlíð. Síðar flutti
hann í Blönduhlíð og þaðan í
Mávahlíð, þar sem hann bjó þar til
hann hafði lokið háskólanámi. „Ut um
gluggann í Eskihlíðinni blasti
Hlíðarendi við þannig að svæðið
skipaði íljótlega stóran sess í huga
mér. Það fór ekki á milli mála að
þama var mikið um að vera, strákar að
sparka bolta en ég hef líklega slegist í
hópinn þegar ég var á áttunda ári. Á
30
ÓLAFUR GÚSTAFSSON
hefur verið varaformaður
knattspyrnudeildar Vals,
varaformaður félagsins
og í framkvæmdastjórn
Friðrikskapellu. Hann
ritstýrði Valsbókinni árið
1981 og situr nú í stjórn
fulltrúaráðs Vals.
Ólafur Gústafsson.
þeim tíma var 4. flokkur íyrir þá sem
voru yngstir og þess vegna var gríðar-
legur Ijöldi pilta æfingum, á mismundi
aldri, og leikið í a, b, c og d liðum.
Síðar breyttist það fyrirkomulag með
tilkomu 5.- 6.- og 7. flokks.
Knattspymuferill minn var fremur
stuttur því ég lék eingöngu með 4.- og
3. flokki. Læknar ráðlögðu mér að
hætta í knattspymu sökum einhverrar
fótaveiki en það gerði samt ekki
útslagið. Eg var mjög virkur í ská-
tahreyfmgunni á þessum ámm, fór í
ferðalög og stundaði margs konar
útivist flestar helgar sumarsins. Eg tók
það fram yfir knattspyrhuna. Á mínum
stutta knattspymuferli kynntist ég
mörgum mætum mönnum sem ég hélt
góðu sambandi við og vann náið með
þegar ég hóf að starfa fyrir Val.”