Valsblaðið - 01.05.2000, Side 45
Ungir Valsarar
Elfa Hreggviðsdóttir meistaraflokki í handbolta
Fæðingardagur og ár: 19. október 1983.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Bara fullt fullt af bikurum.
Fyrsta augnablikið sem þú manst eftir: Þegar að ég var á
skíðum 7 ára gömul og ætlaði að stökkva af stökkbretti með
stæl. Þegar að ég lenti beit ég í sundur á mér tunguna. Það lýsir
því hvað ég er rosalega óheppin.
Af hverju handbolti: Geri allt eins og Teddi frændi, þetta er
líka skemmtilegasta íþróttin.
Flest mörk í leik: 12 mörk í unglingaflokki.
Eftirminnilegast úr boltanum: Þegar við unnum allt sem hægt
var að vinna í 3. flokki '99.
Skemmtilegustu mistök: Hef gert svo mörg mistök að ég man
ekki eftir neinum sérstökum.
Fyndnasta atvik: Við vorum að keppa með 5. flokki fyrir
langa langa löngu. Við höfðum verið í sókn og vorum að hlaupa
til baka þegar ein stelpan, sem var með mér í liði, datt og fór
svona fjóra afturábak kollhnísa áður en hún gat staðið upp.
Dómarinn þurfti að stoppa leikinn því að það lágu allir í hlátur-
skrampa á gólfinu.
Stærsta stundin: Þegar ég fór á fyrstu handboltaæfinguna 8 ára
gömul.
Hvað hlægir þig í sturtu: Þegar vatnið er frosið.
Kostir: Mikið keppnisskap og oftast í góðu skapi.
Ókostir: Alltaf rosalega þreytt og með ólæknandi skósýki.
Athyglisverðust í meistaraflokki: Hafrún, hún er sú allra
fyndnasta, toppmanneskja og alltaf með einhverjar sögur.
Flottastur í Val: Baldur húsvörður.
Hvað lýsir þínum húmor best: Algjör aulahúmor sem endar
oftast með því að ég er sú eina sem hlæ.
Fleygustu orð: Má ég sjá!
Það fallegasta sem hefur verið sagt um þig: Þegar stelpumar
hrósa hlaupastíl mínum, hann er sá allra flottasti.
Hjátrúarfull: Fer ekki úr upphitunargallanum fyrr en fyrirlið-
inn er búinn að heilsa dómaranum.
Á hvaða íslendingi hefurðu mestar mætur: Auðvitað
mömmu og pabba.
Fullkomið laugardagskvöld: Með góða spólu, mikið nammi
og kærastann.
Ef þú yrðir að vera einhver önnur: Ætli ég vildi ekki vera
Mia Hundvin, hún er rosalegur leikmaður.
Hvað gætirðu aldrei hugsað þér að gera: Að borða pöddur og
svoleiðis viðbjóð.
Mottó: Hláturinn lengir lífið.
Fyrirmynd í boltanum: Mia Hundvin í norska landsliðinu.
Leyndasti draumur: Of mikið leyndarmál.
Erfiðasti andstæðingur: Ásdís í KA- hún er líka leiðinlegasti
andstæðingurinn.
Kærasti: Einar Hólmgeirsson.
Við hvaða aðstæður líður þér best: í algjörri afslöppun upp í
sófa með Einari.
Pínlegasta uppákoma: Við voru að skjóta úr stöðum á æfingu
og Elvar þjálfari var í marki og ég skaut í andlitið á honum.
Eftirminnilegasta stefnumót: Fyrsta stefnumótið með Einari.
Við fórum í sund og hittum gjörsamlega alla sem við þekktum.
Það var frekar vandræðalegt.
Hvaða setningu notarðu oftast: Ég get þetta ekki.
Ef þú værir alvöld í Val: Láta kynda meira í litla salnum á vet-
uma, það er ekki líft þar fyrir kulda.
Valsblaðið 2000