Bjarmi - 01.09.2004, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
4 Þrjú komma sex
Ragnar Schram ræðir um
fóstureyðingar og skoðar þær í
Ijósi kristinnar siðfræði. Með
fylgir svar kirkjuleiðtoga og stutt
hugleiðing um fyrirgefninguna.
UF’itt er ekki mitt og
mitt er ekki þitt
Ólafur Jóhannsson heldur áfram
umfjöllun sinni um boðorðin. Nú
er komið að því sjöunda.
16Megnið í grjót og
grindverk, steypu
ogstál
Halldór Elias Guðmundsson
tekur fyrir notkun fjármuna
kirkjunnar, forgangsröðun þegar
spurningin er hvort byggja eigi
upp kirkjubyggingu eða kirkju-
starf og tekur dæmi um ákvarð-
anir sem hefði mátt hugsa betur.
20Biblían í ólgusjó
Ragnar Gunnarsson bregst við
ákalli um að Biblían sé látin hafa
minna vægi í siðferðisumræðu
kirkjunnar.
22Gmndvallarsannindi
fagnaðarerindisins
Haraldur Jóhannsson gerir grein
fyrir nýlegri bók hins þekkta
guðfræðikennara John Stott i
Bretlandi. Þar fjallar hann um
þau atriði sem hann telur skipta
mestu máli i boðun og áherslu
kirkjunnar.
25Barnabas
Haraldur Jóhannsson skrifar
hugleiðingu um eina af merkus-
tu persónum Nýja testa-
mentisins og hvað við getum
lært af henni.
(íafa
Ragnar Gunnarsson fór á fund
Eiríks Sigurbjörnssonar sjón-
varpsstjóra Omega til að
fræðast af honum um 12 ára
starf og útsendingar stöðvar-
innar áðurfyrr og nú.
36Trúarlegt ofbeldi
Vigfús Ingvar Ingvarsson tekur
fyrir andlegt ofbeldi í trúarlegu
samhengi, hættur þess og
hvernig greina má tilburði til
misbeitingu valds í söfnuðum
og á kirkjulegum vettvangi.
Auk þess: Stuttar hugleiðingar
um ýmsi efni, bóka- og tón-
listartíðindi.
hlýtur að
beðið"
Margt fer miður
Vera má að ein-
hverjum lesendum
Bjarma finnist að
þessu sinni að í
greinum blaðsins sé
sjónunum beint
aðeins of mikið að
því sem miður fer,
hefur farið miður eða getur farið miður.
Ekki var það ætlunin að hafa neitt slíkt
sem þema blaðsins enda tilgangurinn
með þeim greinum sem um ræðir að
benda á rétta braut svo hún sé valin.
Á hinn bóginn er því ekki að neita að
heimurinn sem við lifum í ber mörg
merki þess að ýmislegt hefur farið miður.
Fréttir fjölmiðla eru áhugaverðastar, að
því er virðist, ef þar er sagt frá því sem
fór úrskeiðis, frá hörmungum og slysum,
stríði og misbeitingu valds svo eitthvað
sé nefnt. Við lifum í heimi óréttlætis og
mannlegrar vonsku fyrir utan allt hitt sem
mannlegur máttur ræður engu um.
Vitnisburður Biblíunnar um synd manns-
ins og mannkynsins er ekki fjarlæg
kenning heldur raunveruleiki sem ber
fyrir augu og eyru og kallar á baráttu í
huga okkar og hjarta dag hvern.
í baráttu fyrir réttlæti og kærleika þarf
oft að benda á það sem ekki er i lagi.
Við þurfum að gæta þeirra sem ekki geta
gætt sín sjálf, styðja og styrkja hið veika.
Á það benda greinar blaðsins um fóstur-
eyðingar og ofbeldi i trúarlegu samhengi.
Þó svo að erfitt sé að fjalla um mál sem
þessi viljum við heldur ekki þegja,
engum er greiði gerður með því.
Nú fyrir nokkrum dögum birtist ný
skýrsla um mannréttindabrot sem unnin
hefur verið af bandaríska utanríkisráðu-
neytinu. Skýrslan sú ber vott um margt
sem miður fer dag eftir dag í mörgum
ríkjum heims. Meðal þess sem er fótum
troðið er trúfrelsi fólks. Sádi-Arabía
komst nú í fyrsta sinn á lista yfir „átta
lönd sem þar sem ástandið er mjög
alvarlegt." Ný ríki á listanum eru Erítrea
og Víetnam þar sem um er að ræða
alvarleg, kerfisbundin og stöðug brot á
trúfrelsi. Hin löndin fimm eru Búrma,
Kína, íran, Norður-Kórea og Súdan. Að
mati talsmanna mannréttindahreyfinga
segir það mikið að ríki skuli vera á þess-
um lista. Þrýstingur er á að fleiri lönd
séu í þessum hópi eins og Pakistan og
Túrkmenistan. Viða annars staðar er
ástandið mjög slæmt í þessum efnum
og illa gengur að vinna að umbótum á
alþjóðavettvangi á þessu sviði. Minnst er
á þrjú Evrópuríki í skýrslunni, þ.e. Belgíu,
Frakkland og Þýskaland sem eru ásökuð
um að nota löggjöf landsins og fram-
kvæmd hennar til að stimpla trúarlega
minnihlutahópa sem hættulega
sértrúarhópa.
Vandamál okkar sjálfra, íslensks
veruleika og ástand mála úti í hinum
stóra heimi geta á köflum fyllt okkur
vonleysi og svartsýni. En sem betur fer
eru tvær hliðar á þessum veruleika. Hið
illa mun ekki sigra þegar upp er staðið.
Okkar er að vinna að því að hið illa sigri
ekki hér og nú, hvorki heima né heiman.
Vopn okkar eru trú, von og kærleikur.
Boðandi, biðjandi og þjónandi kirkja.
Mættum við fá náð til að lifa i heiminum i
nafni sigurvegarans Jesú Krists með
þeim afleiðingum og þeirri ábyrgð sem
því fylgir.
Ragnar Gunnarsson
Bjarmi 98. árg. 3. tbl. september 2004
Útgefandi: Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri: Ragnar Gunnarsson. Ritnefnd: Kjartan Jónsson og Haraldur
Jóhannsson. Ritnefndarfulltrúar: Ragnar Scbram og Hanna Þórey Guðmundsdóttir. Prófarkalestur: Þorgils Hlynur
Þorbergsson. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,104 Reykjavík, sími 588 8899, fax 588 8840, vefslóðir www.bjarmi.is
og sik.is. Árgjald: 3.200 kr. innanlands, 3.700 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. apríl. Verð í lausasölu 800 kr. Ljósmyndin Life Issues,
Kristján Einar Einarsson, Ragnar Gunnarsson, Halldór Elías Guðmundsson, Sigurður Ragnarsson o. fi. Forsíðumynd: Life Issues.
Umbrot: Steinar Ragnarsson. Prentun: Prentmet.
3