Bjarmi - 01.09.2004, Page 19
sóknanna, enda er sú hefð þar sem
samskot eru tekin að á þann veg að
samskotunum er varið til fyrirfram
skilgreindra verkefna en ekki
daglegs reksturs.
Hlutverk þjóðkirkjunnar
Staða þjóðkirkjunnar er erfið.
Hún hefur fjölmörgum skyldum að
gegna. Kirkjan er í eina röndina
menningarstofnun, hlutverk kirkj-
unnar sem umgjarðar um hátíðleg-
ustu atburði lífsins er óumdeilt, hún
er mikilvægur hlekkur í samfélaginu
í dreifðari byggðum, henni er ætlað
að taka þátt í uppeldi barna og
unglinga og hefur auk þess skyld-
um að gegna sem líkami Krists á
jörðu.
Þegar kemur að þvi að taka
ákvarðanir um fjármál kirkjunnar,
geta þessi mismunandi hlutverk
virst ósamrýmanleg.
Sóknarnefndarfólki er mikill
vandi á höndum, peningarnir
eru takmarkaðir en verkefnin
ekki. Væntingar brúðhjóna
um glæsilega
barna og foreldra i Staðahverfinu
um öflugt kirkjulegt barnastarf.
Víðast hvar er vel staðið að
málum. Aukið aðhald yfirstjórnar
kirkjunnar og sérfræðiráðgjöf frá
Biskupsstofu eru skref í þá átt að
draga úr mistökum sóknarnefndar-
fólks. Öflugt fræðslustarf, m.a. í
Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar gerir
sóknarnefndir betur í stakk búnar til
að velja þau verkefni sem máli
skipta fyrir söfnuðinn. Aðstæður
sóknarnefndarformannsins í Flatey
á Breiðafirði eru sorglegar en ný
vinnubrögð þjóðkirkjunnar og aukin
fræðsla sóknarnefndarfólks draga
úr hættunni á að slíkar
aðstæður myndist í
Elías Guðmundsson er
djákni og starfar sem fram-
kvæmdastjóri Grensáskirkju.
Skoðanir sem kunna að
koma fram í grein þessari
eru Halldórs sjálfs en lýsa
ekki viðhorfum og
hugmyndum vinnu-
veitanda hans.
' \
Nýtt húsnæði í þéttbýli
Fjöldi glæsilegra kirkna og safnaðarheimila hefur risið á
síðustu 20 árum um allt land. Þar má nefna Glerárkirkju,
Grafarvogskirkju, Grensáskirkju, Kirkju- og menning-
armiðstöðina á Eskifirði, kirkjuna að Árnesi á Ströndum,
kirkjurnar á Blönduósi, Tálknafirði, Reyðarfirði, Eskifirði,
Djúpavík og Þórshöfn. Eins hafa glæsileg safnaðarheimili
risið við Akureyrarkirkju, Ingjaldshólskirkju,
Laugarneskirkju, Neskirkju og Háteigskirkju.
Yfirumsjón með öllum þessum byggingum var í hönd-
um sóknarnefnda sem vann að verkefninu í frítíma sínum.
Afleiðing þess var að oft virðast arkitektar haft mjög frjáls-
ar hendur um listsköpun og í einhverjum tilvikum á kost-
nað hagkvæmra lausna. Eins virðast á stundum hafa verið
teknar ákvarðanir sem ekki voru í samræmi við raun-
verulegar þarfir safnaðanna.
Kirkjusamstæðan
Ef iitið er til þjóðkirkjunnar sem fyrirtækjasamsteypu
er kirkjan eitt af 60 stærstu fyrirtækjum landsins og hefur
staða hennar á þeim lista ekkert breyst frá árinu 1997.
Fyrirtæki með svipaða ársveltu eru t.d. ÍSTAK, Nýherji,
íslandspóstur og Hampiðjan. Ef litið er til opinberra stofn-
ana veltir kirkjan aðeins minna en Háskóli íslands, en er
stærri en t.d. Leikskólar Reykjavíkur svo dæmi sé tekið.
Þegar hins vegar litið er til launagreiðslna færist kirkjan
upp á listanum, en kirkjan er einn af 20 stærstu launa-
greiðendum landsins.
Óraunhæfar áætlanir
í viðtali við Frjálsa verslun 1997 taldi Bjarni Grímsson
sóknarnefndarformaður Grafarvogskirkju að heildarkost-
naður við byggingu kirkjunnar yrði um 350 milljónir króna.
Búið væri að greiða 250 milljónir þá þegar og eftir væru
framkvæmdir fyrir um 100 milljónir króna. Eins taldi hann
að um söfnuðurinn yrði skuldlaus um 2012. Heildarskuldir
safnaðarins þegar viðtalið fór fram voru um 160 milljónir.
Nú, sjö árum síðar, er Ijóst að ekkert stóðst í þessum
áætlunum.
Skuldirnar eru í dag um 500 milljónir króna, ekkert virðist
hafa verið greitt niður af lánunum og framkvæmt hefur verið
fyrir a.m.k. 200 milljónir króna á þessum 7 árum.
Staða Grafarvogskirkju er enda mjög alvarleg og Ijóst
að ef leysa á vanda safnaðarins blasir við að skera þurfi
niður allt safnaðarstarf um þriðjung eða sem nemur rétt
um 10 milljónum á ári til allt að 20 ára.
Skuldir einstakra sókna
í lok árs 2002 námu heildarskuldir sóknanna alls 2,3
milljörðum króna. Þar af skulduðu þeir fjórar skuldsettustu
tæpan 1 milljarð króna.
Grafarvogssókn 498 milljónir kr.
Grensássókn 236 milljónir kr.
Dómkirkjan 120 milljónir kr.
Garðasókn 116 milljónir kr.
V_______________________________ J
19