Bjarmi - 01.09.2004, Page 29
„Eg vil að þú byggir mér kristilega
sjónvarpsstöð." Ég lyfti þá bara
höndum og sagði við Drottin að ég
væri tilbúinn að berjast fyrir þennan
málstað, af því að hann væri að
kalla mig til þess. Ég fylltist af trú
og krafti og sá fyrir mér að þetta
yrði hægt. Ég fylltist fullkominni
vissu. Rétt á eftir vaknaði kona mín
og ég sagði henni að Guð hefði
talað til mín og kallað mig til að
byrja með kristilega sjónvarpsstöð.
Hún gaf mér bara holl ráð, og sagði
„Eg vil að þú byggir
mér kristilega sjón-
varpsstöð."
mér að ég þyrfti að vita hvað ég
væri að gera, og ætti ekki að ana út
í neitt ævintýri. Ég vissi að ég átti
ekki að tala um þetta við marga til
að byrja með. En ég fór að kanna
tæknileg atriði, athuga með senda,
tæki og því um likt. Þennan sama
morgun talaði ég við ákveðinn
starfsmann hjá Pósti og síma,
ágætan mann, og fór að biðja hann
um upplýsingar um sjónvarpstíðni
og allt sem viðkæmi sjónvarps-
rekstri. Mérfannst nú báran þung.
Eg fann hvernig hann hugsaði: Að
þetta væri hálfgerð bilun að févana
einstaklingur hefði í huga að hefja
sjónvarpsrekstur. Ég hlyti að vera
bilaður.
En ég sótti um sjónvarpsleyfi og
fékk mjög fljótlega úthlutað leyfinu.
Ég mætti á staðinn til að skrifa
undir og ganga frá þvi. Tvö þeirra
sem voru þá í Útvarpsréttarnefnd
komu með vinsamlega ábendingu
og spurðu mig hvort ég gerði mér
grein fyrir þvi hvað ég væri að fara
út i. Þau vísuðu til þess gífurlega
kostnaðar sem Ríkisútsvarpið hefði
af sjónvarpsrekstri sínum. Og einn
sagði við mig: „Ég verð að viður-
kenna að þú ert sá bjartsýnasti
maður sem ég hef hitt á ævinni.“
Svo var skrifað undir, konan mín var
með mér. Saman fórum við út í bíl-
inn okkar, gamlan Citroén, lokuðum
okkur þar inni, ég hélt á gullituðu
blaðinu með leyfisveitingunni, las
þetta yfir og byrjaði á að þakka
Jesú fyrir leyfið og sagði við hann:
„Ég á engan sjónvarpssendi, hef
enga dagskrá og mig vantar alla
peninga til að fara af stað." En ég
vissi að hann myndi uppfylla allt
sem til þyrfti.
Þetta hefurþá veriö upphaf barátt-
unnar?
Já, svo sannarlega, nú hófst
baráttan. Hún var nú aðallega á
hnjánum, í bæn. Ég lokaði mig inni
á litlu skrifstofuherbergi, var þar inni
i tvo til þrjá tíma í senn, og reyndi
að fá fullvissu um að ég væri að
gera rétt og færi rétt að með þessi
áform. Nú fékk ég þær féttir að
Austfirska sjónvarpsstöðin á Egils-
stöðum hefði yfir að ráða tveimur
10W sendum sem ekki væru í
notkun. Ég gerði fyrirspurn um það
hvort ég gæti tekið annan þeirra á
leigu. Og þarna fékk ég lítinn sendi
fyrir sanngjarnt leigugjald. En svo
kom babb í bátinn, sendirinn var á
annarri tíðni en þeirri sem við höfð-
um fengið úthlutað. Það þurfti því
að breyta sendinum. Þar kom aftur
til kasta Radíóeftirlits Pósts og síma
og þeir sögðu mér að jafnvel þó
þeir gætu breytt sendinum væri ekki
víst að Fjarskiptaeftirlitið samþykkti
þetta.
Og nú vildu þeir líka fá vinnuna
við þetta greidda fyrirfram. Þeim
fannst þetta allt saman óraunhæf
bjartsýni af minni hálfu. Það tók
mig mánuð að fá inn það fé sem til
þurfti. Séra Guðmundur Örn Ragn-
29