Bjarmi - 01.09.2004, Blaðsíða 30
Einn af þeirra ágætu starfsmönnum
sagði: „Þú hlýtur að hafa beðið.“
arsson frétti af þessu og sagðist
ætla að hjálpa mér að leita til hinna
ýmsu safnaða til að unnt væri að
framkvæma breytingarnar á send-
inum. Það bar ekki árangur því
enginn vildi taka þátt í þessu. En
einn góðkunningi minn, Ómar
Kristjánsson, var einn af þeim ein-
staklingum sem lagði sitt fram. Og
þótt hann efaðist um að þetta
gengi, þá sagði hann ekki nei.
Þannig fékk ég það sem til þurfti og
kom peningunum til gjaldkera Pósts
og síma og hafist var handa.
Þetta gekkþá vel?
Það var nú ekki alveg svo ein-
falt. Ég fékk hringingu 10 dögum
síðar. Var beðinn um að koma niður
á Radíóeftirlit, en tónninn var ekki
léttur. Þegar ég svo kom á staðinn
voru menn grafalvarlegir, og sögðu
að því miður væri sendirinn ónot-
hæfur. Það væri svo mikil bjögun á
tíðninni og útsendingunni. Ég trúði
varla minum eigin augum. Var hálf-
máttlaus í hnjánum af vonbrigðum.
Ég fór heim og sagði konunni minni
tíðindin, sem voru ekki uppörvandi.
En um hálftíma siðar hringir síminn,
þá var ég beðinn um að koma aftur
í snatri. Þeir sögðu mér frá mann-
legum mistökum, mælitæki hefðu
verið stillt á of mikla mögnun, þetta
væru góð tíðindi og allt væri i góðu
lagi. Einn af þeirra ágætu starfs-
mönnum sagði: „Þú hlýtur að hafa
beðið.“ Níu mánuðum síðar vorum
við komin í lítið húsnæði í Bolholti
6, 5. hæð. Þann 28. júlí árið 1992
hófust fyrstu útsendingarnar. Við
höfum nú verið að í 12 ár.
En þetta var ekki öflugur sendir?
Nei, sendingin náði aðeins til
fárra og þetta virtist vitavonlaust.
En svo má segja að hvert krafta-
verkið hafi rekið annað. Ég man
eina stóra stund, snemma að
morgni í september sama ár. Þá
hringdi síminn um níuleytið. Ég var
hálfhissa, því ég hélt að búið væri
að loka símanum. En ég heyrði
mjög skýra rödd, sem spurði á
ensku, hvort þetta væri hjá kristi-
legri sjónvarpsstöð. Viðmælandi
minn sagðist vera Dr. Paul Crouch,
einn þekktasti sjónvarpsmaður í
Bandaríkjunum, með stærsta dreif-
ingarkerfi kristilegra sjónvarps-
stöðva vestanhafs. Ég hafði reynt
að ná i þennan mann ítrekað, en án
árangurs. Þennan morgun var hann
allt í einu á tali við mig í símanum.
Röddin i simanum var svo skýr. Ég
hélt i fyrstu að verið væri að gabba
mig. Hann sagðist vera í Keflavík á
leið til Rússlands og hann væri með
smáupþlýsingar um þessa stöð.
Mér datt í hug að hann hefði loks
fengið fax frá mér sem ég hafði
áður reynt að senda honum, en það
var nú ekki. Hann var að fletta
lceland Review á Keflavíkurflugvelli
og þar var grein sem sagði frá
fyrstu kristilegu sjónvarpsstöðinni á
íslandi. Þetta var stutt grein og
heimasíminn minn gefinn upp. Ég
hafði ekki hugmynd um þessa grein
og veit ekki enn hver kom henni
þarna inn. Ég sagði honum náttúru-
lega að ég hefði reynt að ná sam-
bandi við hann.
Dr. Paul Crouch spurði mig
hvað ég væri með stóran sendi. Ég
byrjaði á góðu fréttunum, sagðist
vera með sendingu 24 tíma á sólar-
hring, og ýmislegt annað jákvætt,
en þegar kom að sendinum þagnaði
ég, þvi ég hélt að hann myndi
missa áhuga við að heyra hve
smátt þetta væri. En hann sagði:
„Við skulum ekki líta smátt á litla
byrjun. Allt byrjar þannig." Hann
spurði hvort ég hefði áhuga á að fá
dagskrá frá sér, sem ég jánkaði aö
sjálfsögðu. Hann sagðist geta hjálp-
að mér með stærri sendi, ekki
minni en 1000 W. Siðan sagðist
hann koma sömu leið til baka
þ.e.a.s. í gegnum ísland, en ef við
hittumst ekki þá yrðum við i síma-
sambandi. Tíu dögum síðar sendi
hann yfirverkfræðing sinn til lands-
ins, til að fræðast um hvað við
þyrftum. Ég sagði honum frá því,
talaði um að við þyrftum senda
víðs vegar og einn stóran á Vatns-
enda. Einnig benti ég á þörfina á
ýmiss konar tækjabúnaði. Síðan
fékk ég fax viku síðar. Þar sagði Dr.
Paul Crouch að sjónvarpsstöðin
TBN myndi aðstoða mig með það
sem til þyrfti. Nokkrum mánuðum
síðar voru hingað komnir fullir
gámar af sendum og tækjabúnaði.
Hvaða aðrir áfangar eru merkir að
þínu mati?
Eitt af undrunum er, að fyrir
tveimur árum byrjuðum við að
senda til útlanda frá jarðstöð hér
fyrir utan bæinn. Dagskráin er send
til Noregs og þaðan upp í gervihnött
sem sendir um Norður-Evrópu.
Þetta er öflugasti hnötturinn fyrir
það svæði. Fjöldi fólks nær þessum
sendingum, því búið er að stilla
búnað til móttöku sendinganna á
1,6 milljónum heimila, þar sem
þetta er hluti af ákveðnu dagskrár-
tilboði. Þar erum við á listanum yfir
rásir sem nást. Við erum virkilega
sýnileg þar. Dagskráin er ekki sú
sama og við sendum út á innan-
landsdreifikerfi okkar þó að sumt sé
30