Bjarmi - 01.09.2004, Síða 31
sameiginlegt. Dagskráin er á ensku
og Norðurlandamálunum.
Veturinn 1994-5 var ég staddur
um tíma í Sacramento í Banda-
k rikjunum. Þá gerðist nokkuð merki-
legt. Maður kom til mín og sagði:
„Þú munt byrja með útsendingar
inn í Evrópu.” Ég hafði verið með
þetta í huga en var þá meira að
hugsa um Mið-Austurlönd, en hann
sagði að ég myndi byrja i Norður-
Evrópu, sem varð svo reyndin.
Nú eruð þið að vinna að frekari
útvíkkun?
Já, við erum að undirbúa send-
ingar frá ísrael. Merkið frá íslandi
verður tekið niður frá fjarskipta-
hnetti, og sent upp í öflugan hnött
sem dreifirtil Evrópu, Mið-Austur-
landa, stórs hluta Rússlands og inn
i vesturhluta Kína. Um 35 milljónir
heimila eru nú þegar með móttöku-
diska fyrir þennan hnött. Þetta verð-
ur þriðja rásin hjá okkur, eingöngu á
ensku, að visu oft með texta m. a.
arabískum. Mikið af dagskránni
kemurfrá Bandaríkjunum, en við
* munum einnig reyna að fá dagskrá
frá Sat7 og öðrum þeim sem fram-
leiða dagskrá sérstaklega fyrir þetta
svæði. Síðan er annar draumur, eða
næsta skref, að hefja sendingar upp
í enn annan hnött, Thaicom 3, sem
er Asíuhnöttur, og nærtil alls Ind-
lands og mikils hluta Asíu.
En hverjir eiga þessa stöð, Omega?
Við segjum að það sé aðeins
Guð, stöðin er hans verk. Að baki
stöðinni er félag eða hópur fólks
sem er skráður undir nafninu
Omega Kristniboðskirkja. Við feng-
um fyrir nokkrum árum að ganga
inn i kaupsamning núverandi hús-
næðis, sem var mikil framför og
blessun fyrir okkur. Fyrir það erum
við þakklát.
Við sem störfum hér vinnum að
hlutunum saman. Starfið byggir á
trú, bæn og fullvissu þessa fólks
sem er með köllun og þráir að
þjóna Drottni með boðun fagnað-
arerindisins í gegnum sjónvarp. Við
erum með samverustundir hér á
sunnudögum klukkan ellefu. Þessar
samverur sendum við beint út
héðan frá Omega. Við komum hér
saman til að syngja og lofa Drottin.
Þetta er einfalt og gert í hógværð.
Við reynum stöðugt að ná til nýs
fólks sem hvergi fer í kirkju en vill
fylgjast með og taka þátt heima.
Hvað ræður valinu á dagskránni hjá
ykkur?
Þar kemur ýmislegt til. Þetta er
alltaf spurning um hvað við ráðum
við fjárhagslega og hverjir eru
tilbúnir að taka þátt í kostnaðinum.
Hér á landi þurfum við að texta
efnið, bæði er það skylt þegar ekki
er um beina útsendingu að ræða og
margir áhorfendur skilja ekki ensku.
Textunin tekur tíma og kostar sitt.
Það setur okkur skorður. Til dæmis
sýnum við ekki þætti Bennys Hinn
núna vegna þessa. í byrjun fengum
við fjárhagsstuðning að utan til að
texta þættina, en ekki lengur. Sama
er að segja um þætti frá TBN,
Praise the Lord. Textunin krefst
þess að við höfum gott fólk til að
sinna henni. í bili eru þessir þættir
þvi eingöngu sendir út á Evróþurás
okkar. Þar er meiri fjölbreytileiki en
við ráðum við að senda út hér
innanlands. Að sjálfsögðu breytum
við einnig til i dagskrárvali eins og
aðrar sjónvarpsstöðvar gera.
Eins og þegar er komið fram
höfum við í hyggju að ná lengra.
Þess vegna höfum við að undan-
förnu staðið í fjáröflun i því skyni að
komast á nýjan gervihnött og ná
þannig til enn fleiri landa með fagn-
aðarerindið. Við höfum boðið fólki
að gerast frumherjar í þessu nýja
átaki með því að leggja fram eitt
hundrað þúsund krónur. Þeim hin-
um sömu höfum við heitið gervi-
hnattamóttökudiski með uppsetn-
ingu, þeim að kostnaðarlausu.
Hvað vitið þið um áhorfenda-
hópinn?
Við segjum nú að við þekkjum
ekki neinn sem ekki hefur horft eitt-
hvað á Omega. Áhorfendahópurinn
er mjög blandaður, það sjáum við á
þeim sem hafa samband. Fólk
Um 35 milljónir heimila eru nú þegar
með móttökudiska fyrir þennan hnött.
Petta verður þriðja rásin hjá okkur.
hringir og þakkar fyrir dagskrá eða
lætur vita af sér á einn eða annan
hátt. Sumt fólk hringir inn til að fá
fyrirbæn eða leggja fram bænarefni.
Aðrir koma með bróðurlegar ábend-
ingar um hvað megi gera betur um
leið og þeir blessa okkur. Það er
hollt fyrir okkur að hlusta á slíkar
ábendingar. Við viljum gera það
sem rétt er og vanda okkur. Það
sem við sendum út á að vera gott
og þannig að það hafi sem mest og
best áhrif.
Svo er til fóik sem hringir af
31