Bjarmi - 01.09.2004, Side 33
H
Hrönn Svansdóttir
Tommy Walker
Þegar geisladiskurinn „Gold“
meö Crystal Lewis kom út fyrir
nokkrum árum, þá var eitt lag sem
vakti strax athygli mína. Það var
lagið „Lord, I Belive in You“. Ég
spilaði lagið aftur og aftur, sterkur
boðskapur textans og grípandi lag-
línan náðu sannarlega til hjartans.
Ég tók ekki sérstaklega eftir því
hver væri höfundur lagsins enda
þekkti ég ekki til hans á þeim tima
en þegar Gospelkór Fíladelfíu fór i
tónleikaferð til Los Angeles þá
breyttist það. Við heimsóttum kirkju
þar sem maður að nafni Tommy
Walker er lofgjörðarleiðtogi og sagt
var að hann væri leiðandi í lofgjörð-
artónlist í Bandaríkjunum. Þegar ég
hlustaði á lofgjörðardiska sem ég
fékk þar, þá komst ég að því að
Tommy Walker á fjölda góðra laga
og texta sem hitta mann beint í
hjartastað.
Tónleikarnir voru teknir upp í
Regent University í fyrrasumar og
diskurinn kom út síðastliðinn vetur.
í kirkjunni hjá Tommy er fólk af
öllum kynstofnum og kemur víðs
vegar að úr heiminum og það kem-
ur líka fram í tónlistinni. Diskurinn
inniheldur 12 lög, flest eru þau eftir
Tommy. Lögð er áhersla á að hægt
sé að nota þau í almennum söng í
kirkjunni og að lögin séu grípandi
og flestum líki þau, óháð þvi hvaða
bakgrunn fólkið hefur. Titillagið
„Make it Glorious" fjallar um það að
þegar við lofum Guð þá skulum við
gera það vel, hann á aðeins skilið
það besta. Það lag sem hefur talað
einna mest til mín er lagið „Thank
you for Loving Me“ og innihald
lagsins er um frelsisverk Jesú
Krists og er lagið þakkargjörð til
Jesú. „Make it Glorious" er gefinn
út á geisladiski og einnig á mynd-
diski (DVD) og söngbók.
Geisladiskar Tommys Walker
hafa verið vinsælir og sala þeirra
fjármagnar lofgjörðarnámskeið og
ráðstefnur sem hann og hljómsveit
hans halda víðs vegar um heiminn
og hver veit nema við getum boðið
upp á eitt slíkt hér á íslandi.
Höfundur er upplýsingafulltrúi og rekur
auk þess netverslunina hljomar.is
hljomar@hljomar.is
Tommy Walker býr nú í Pasa-
dena ásamt konu sinni Robin og
fjórum börnum þeirra. Hann leiðir
lofgjörð i kirkju sem heitir „Christian
Assembly Church“ og hefur spilað
með færustu tónlistarmönnunum í
Los Angeles.
Hann útskrifaðist árið 1982 úr
„Christ for the Nations" með gráðu í
hagnýtri guðfræði og árið 1987
útskrifaðist hann úr „Guitar Institute
of Technology“ með prófgráðu í
jazz og fusion.
Hann hefur leitt lofgjörð, bæði á
ráðstefnum hjá „The Promise Keep-
ers“ (Mönnum með markmið) og
„Harvest Crusade".
Lagið hans „Mourning into
Dancing" sem Ron Kenoly söng á
geisladisknum „Lift Him Up“ hefur
verið gefið út yfir 400 sinnum.
Make it Glorious
Nýjasti diskurinn frá Tommy
Walker heitir „Make it Glorious".
Diskurinn er samstarfsverkefni
CBN sjónvarpsstöðvarinnar,
Integrity Music og Tommy Walker.
33