Bjarmi - 01.09.2004, Qupperneq 35
Bæn Jaebesar
væntanleg á íslensku
k
W.
/
í
PR
Thc
h
m
:/}4bez
•/ r*„ .
1 '•'ifB
r
U/ 'f K u
W'lK
C j;
í N s
O fv
Nú í haust, nánar tiltekið í byrjun nóvember, mun
bókaútgáfan Salt ehf gefa út bókina Bæn Jaebesar
eftir Bruce Wilkinson. Bók þessi hefur á undanförnum
árum selst í stóru upplagi víða um heim og var hún
um tíma á metsölubókalista New York Times.
Höfundur bókarinnar lýsir reynslu sinni af því að
fara með bæn Jaebesar, sem oft hafi gleymst, því
hún leynist í ættartölunum í fyrstu níu köflum 1.
Króníkubókar i Gamla testamentinu.
Bæn Jaebesar er bæn um blessun, að
Drottinn auki við land hans, að hönd Drottins sé
með honum og að öllu böli sé bægt frá honum svo hann
þurfi ekki að líða kvalir. (1. Kron. 4.9). Wilkinson fer i hvern lið þessarar
bænar og hvetur lesandann til að gera þessa bæn að sinni um leið og hann
útskýrir hvað hver og ein bæn felur í sér. Bænin um að Guð blessi okkur
virðist vera sjálfhverf og eigingjörn, en höfundur bendir á að Guð viiji blessa
okkur og að líf okkar verði öðrum til blessunar. Bænin um aukið landsvæði er
bæn um að auka áhrifasvæði sitt Guði til dýrðar. Bænin um að hönd Guðs sé
með okkur í öllu okkar verki er mikilvæg fyrir okkur sjálf og fyrir Guð sem vill
leiða okkurtil réttra verka. Einnig er mikilvægt að biðja um varðveislu Guðs,
enda það sem gert er í bæn Drottins og víðar í Biblíunni.
Bókin er vitnisburður um það hvernig llf höfundar hefur færst nær þvi að
vera I takt við vilja Guðs við það að hann hefur beðið þessarar bænar. Hann
hvetur lesandann til þess að gera slíkt hið sama, biðja þessarar bænar og
vænta þess að Guð fái unnið meira í lífi hans og að þjónustan við Drottin
verði árangursrikari.
Höfundur bókarinnar er einkum þekktur fyrir frumkvöðlastarf sitt fyrir
verkefnið Walk Through the Bible - eða Biblíugönguna.
Það er von útgefenda að bókin verði hvatning til bænar og blessun mörg-
um til handa.
Biblíuskólinn við Holtaveg — námskeið á haustmisseri 2004
fllfa-námskeið I oa II eru hafin og er kennt á mánudagskvöldum kl. 19-22.
Þekktu Biblíuna betur eru fræðslukvöld um rit Biblíunnar, síðasta fimmtudag hvers
mánaðar kl. 20-22. Aðgangur er ókeypis:
30. september: 2. Korintubréf. Kristín Bjarnadóttir.
28. október: Jósúa-og Dómarabækurnar. sr. íris Kristjánsdóttir.
25. nóvember: Efesusbréfið: Skúli Svavarsson.
27. janúar: Opinberunarbókin: sr. Ragnar Gunnarsson.
24. febrúar: Prédikarinn: Kristín Sverrisdóttir.
Námskeið um náðaraiafirnar verður haldið laugardagana 9. og 16. október kl. 10-15.
Leiðbeinandi: sr. Kjartan Jónsson.
Ætlunin er að halda tiármálanámskeið nú á haustmánuðum. Um er að ræða eitt kvöld
þar sem farið verður í fjármál heimilanna o.fl.
Kynning á Tólfsporanámskeiði verður þriðjudaginn 28. september kl. 17:30 í húsi
KFUM og K á Holtavegi 28. Haldið áfram vikulega á sama tíma í vetur.
Skráning og upplýsingar í síma 588 8899, á www.biblíuskoli.krist.is eða með
tölvupósti á skrifstofa@krist.is.
Náð til Irana á
þeirra eigin
tungumáli
í september voru tvö ár síðan íranska
kristilega útvarpsfélagiö (Iranian Christian
Broadcasting - ICB) og kristilega sjónvarps-
stöðin SAT-7 hófu sendingar til írans á farsi-
máli. Formaður ICB sagði af því tilefni: „Við
erum afar þakklát Guði fyrir þessi tímamót.
Þegar við fórum af stað voru margir til að
hlæja að hugmyndinni um kristilegar send-
ingar um gervihnött til írans. Þeirtöldu þetta
vera óframkvæmanlegt og of dýrt. En starfiö
er nú tveimur árum síðar i vexti.“
Upphaflega var aðeins send út dagskrá
einn klukkutíma á viku til írans, Afganistans
og Tajikistans. Nú er send út fjölbreytt dag-
skrá tvo tíma á dag. Henni er fylgt eftir með
ráðgjöf þar sem stuðst er við síma, bréfapóst
og tölvupóst. Gleðin er ekki síst yfir því að
geta horft á kristilega dagskrá á tungumáli
sem áhorfendur skilja. Kristið fólk kemur
saman á heimilum þar sem móttökubúnaður
er fyrir hendi og fylgist með og heldur þannig
sínar samkomur. Lesendabréf og símtöl tjá
mikið þakklæti fyrir framtakið og hversu mikill
stuðningur sé í þessari dagskrá. M.a. hefur
áhorfandi í nágrenni Kabúl í Afganistan haft
samband. Áætlað er að farsimælandi kristið
folk sé um 175 þúsund í og kringum íran.
Mörg þeirra eru i brýnni þörf fyrir hvatningu
og fræðslu sem ekki er unnt að mæta nema
með sjónvarpsdagskrá um gervihnött.
Dagskráin er fjölbreytt, tónlistarmyndbönd,
barnadagskrá, unglingadagskrá, fræðsla fyrir
fullorðna og fleira. Þættirnir eru framleiddir af
farsimælandi fólki frá íran, Evrópu og Norður-
Ameríku.
Fjölmennt á Jesú-
degi í Berlín
Sunnuaginn 12. september var haldinn
hátíðlegur sem Jesú-dagur af kristnu fólki úr
ýmsum kirkjudeildum i Berlín í Þýskalandi.
Sérstök Jesú-dagskrá var í borginni og fjöl-
menn Jesú-ganga um miðbæinn sem um 50
þúsund manns tóku þátt í. Hátíðin var þátt-
takendum til hvatningar og uppörvunar og til
að skapa samhug og einingu um það sem
mestu skiptir þvert á allar kirkjudeildir og
aðra bása sem fólk er gjarnan dregið i.
35