Bjarmi - 01.09.2004, Síða 36
Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson
Hættusvæði
Allt ofbeldi er í raunínni misbeitlng valds
(aflsmunar, stööu, áhrifa). Aðstæður sem
sérstaklega skapa hættu á einhvers konar
misnotkun fólks eru skarpur valdapýramídi -
ófrávíkjanlegt valdakerfi sem endar í valds-
manni á tindinum þar sem allir þræðirnir
(Ijóst og leynt) koma saman. í höndum
manns með tilhneigingu til að misnota vald
getur slíkt kerfi orðið tæki til að ráðskast
með líf fólks. Ennfremur styrkja skörp mörk
hóps slíkt vald, þ.e. að einstaklingar, t.d. í
fjölskyldu eða söfnuði, eigi lítil og yfirborðs-
leg samskipti við fólk utan hópsins. Slíkan
hóp (söfnuð) er erfitt að yfirgefa, þrátt fyrir
andlegt otbeldi, þvl sá sem hefur tilheyrt
hópnum lengi á varla nokkra vini utan hans
og hans bíður þá ógnvænleg einangrun.
Alvarleg misbeiting valds verður þar sem
ekki er aðeins á ferðum misnotandi heldur
einnig kringumstæður þar sem misbeiting
valds er á einhvern hátt liðin. Mörkin á milli
þess sem telst eðiilegt eða líðandi færast
smám saman til vegna þess að því er
stjórnað hvernig gildismatiö mótast hjá fólki
innan hópsins. Slíkt vald reynir valdafíkið
fólk að öðlast og þar sem ekki leyfist að
bera saman bækur sínar við fólk utan
hópsins skapast hætta á að vald sé mis-
notað án þess að til uppreisnar komi eða
fólk yfirgefi auðveldlega hópinn.
í söfnuðum þar sem mikið er ráðskast
með fólk er líklegt að með ýmsu móti sé
reynt að girða fyrir að fólk íhugi þann
möguleika aö yflrgefa söfnuðinn. Oft er
reynt að sverta þá sem fyrir utan standa og
aðra söfnuði og stuðla að lífsmynstri sem
gerir félagsleg samskipti við fólk utan
trúarsamfélagsins erfið (Sbr. Gal4.17). Hér
má nefna áherslu Votta Jehóva á sitt eigið
hátíðakerfi og aðgerðir sumra mísnotandi
trúarhópa til að einangra fólk frá ættingjum
sinum, t.d. með þvi að senda nýliða á fjar-
lægar slóðir, Þá er oft talað illa um þá sem
yfirgefa hjörðina og fólki ráðið frá þvi að
hafa samskipti við þá, jafnvel er það
harðbannað. Til er og að komið sé á flot
sögum sem skýra brotthvarfið eingöngu út
frá brestum hinna brotthlaupnu.
Misbeiting valds lýtur í grundvallaratrið-
um sömu lögmálum í hvaða mynd sem hún
birtist. Öll erum við ófullkomin og lifum í
heimi sem mengaður er af synd. Sumir hafa
þó meiri tilhneigingu en aðrirtil að beita
aðra einhvers konar ofbeldi, andlegu eða
líkamlegu. Hér koma til uppeldisaðstæður
og upplag fólks, einnig stundum geðræn
vandamál og aðstæður í lífi viðkomandi.
Aðstæður sem mótast í hópi fólks, t.d.
fjölskyldu, vinnustað eða söfnuði, geta svo
ýmist verndað fólk gegn ofbeldi eða skapað
misnotanda skilyrði til að kúga fólk.
Hér verður í stuttu máli fjallað um
andlegt ofbeldi í trúarlegu samhengi (trúar-
legt ofbeldi, spiritual abuse). Ekki verður þó
hjá því komist að drepa á nokkur atriði sem
varða misnotkun almennt, kúgun og
niðurlægingu fólks.