Bjarmi - 01.09.2004, Side 37
Til frelsis frelsaði
Kristur oss.
... látið ekki aftur
leggja á yður
ánauðarok
Alvarleg misbeiting valds verður þar sem
ekki er aðeins á ferðum misnotandi heldur
einnig kringumstæður þar sem misbeiting
valds er á einhvern hátt liðin.
Fólk brotið niöur
Fólk, sem er alvarlega misboöiö, er lík-
legt til að rísa gegn kúgaranum þó aðstæður
kunni að gera það erfitt. Hluti af alvarlegri
kúgun og forsenda þess að hún haldi áfram
er því að fólk er brotiö niöur svo það
brestur kjark til uþpreisnar og sér jafnvel
ekki kúgunina - heldur aðeins hvað það
sjálft er misheþpnað. Það verður háð hóp-
num og leiðtoga hans á óeðlilegan hátt.
Margir, sem fara illa út úr trúarlegu ofbeldi,
voru á einhvern hátt brotnir fyrir og með
veika sjálfsmynd eða stóðu höllum fæti við
inngöngu (eða sættu félagslegri röskun) en
fá stuðning úr þéttum hópi með sterkan
leiðtoga. Jafnan er um hugsjónafólk að
ræða. Misnotandi leiðtogi spilar á veika
sjálfsmynd og gætir þess að halda fólki
niðri. Það er ýmist uppörvað og hvatt til
dáða eða fær skilaboð um að vandinn sé
því að kenna, það standi sig ekki nógu vel.
Þetta er niðurbrjótandi. Slíkur leiðtogi vill
byggja fólk upp, fræöa það og styrkja (til að
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
kraftar þess nýtist sem þest) en halda því
jafnframt háðu sér og hópnum þanníg að
það komi hvorki til með að yfirgefa hópinn,
þó troðið sé á því, né fari að ógna veldi
leiðtogans með kröfu um áhrifavald umfram
það sem hann getur sætt sig við.
Fólki sem sýnir of mikið frumkvæði og
sjálfstæði, m.a. hvað menntun varðar, svo
leiðtoganum finnst að sér kunni að verða
ógnað, er oft rutt úr vegi. Ef leiðtoga sýnist
auðmýkt þess og hollusta ekki ótvlræð er
því haldið frá öllum áhrifum og það snið-
gengið þar til það dregur sig í hlé í þessu
samhengi og hverfur loks alveg á braut.
Þetta hefur orðið mörgum sár reynsla.
Ein tegund trúarlegs ofbeldis er féfletting
fólks þar sem því er jafnvel talin trú um að
andleg og líkamleg velferð þess stjórnist af
því hve mikið það gefur til tiltekinna málefna
(aflátssala nútímans). Ráðríkir trúarleiðtogar
fara einnig oft frjálslega með fjármál og
verja fjármunum ekki í samræmi við það
sem gefendum er sagt og bókhald ekki
aðgengilegt eða nær ekki yfir alla starf-
semina.
Óhóflegar kröfur um vinnu I þágu safn-
aðar (og óviðráöanleg verkefni) geta í
sumum söfnuðum gengið nærri likamlegri
og andlegri heilsu fólks.
Staða kynjanna I safnaðarsamhengi er
vissulega stórt mál sem oft tengist andlegu
ofbeldi á einhvern hátt þó ekki verði um þaö
fjallað hér.
Leiötogi sem er óöruggur innra með sér
leitar stundum öryggis í því að ráðskast
með fólk og setja söfnuð sinn í lögmáls-
bundnar skorður, hvað sem líður áherslu í
boðun á náð Guðs. Margir eiga lika erfitt
með að meðtaka náðina, sem lifaðan
veruleika, þó þeir kunni að geta gert guð-
fræðilega grein fyrir óskilyrtri elsku Guðs.'m
Til þess að geta yfirgefið söfnuðinn, sem
almennt er eina leiðin til að losna undan
niðurbrjótandi valdi, þarf oft fyrst innri sigur
þar sem hinn kúgaði hefur sig yfir hið kúg-
andi vald. Þetta innra gegnumbrot breytir