Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 17
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
11
sem vinna við tilraunastarfsemina. Gísli Kristjánsson sá
um undirbúning námskeiðsins að venju og stjórnaði fund-
um þess.
RúningsnámskeiS. Búnaðarfélag Islands gekkst fyrir og
skipulagði þrjú námskeið til að kenna vélklippingu sauð-
fjár að vetrarlagi. Félagið réði bónda frá Wales, Mr. J. M.
Hopkin, til þess að kenna vélrúning, en það er sami mað-
ur og kenndi vélrúning hér vorið 1962. Árni G. Pétursson,
sauðfjárræktarráðunautur, ferðaðist með Mr. Hopkin,
skipulagði námskeiðin, samdi við bændur og var túlkur
fyrir Mr. Hopkin. Nær 50 manns notfærðu sér námskeið
þessi, sjá starfsskýrslu sauðfjárræktarráðunautar.
Búvörudeild S. 1. S. veitti fjárliagsstuðning við nám-
skeið þessi og Véladeild S. 1. S. lánaði vélklippur, sem
notaðar voru á námskeiðunum. Búnaðarfélag Islands
þakkar þessa aðstoð.
Þá varð Búnaðarfélag íslands við þeim tilmælum frá
firmanu O. Johnson & Kaaber, að sauðfjárræktarráðu-
nautur félagsins skipulegði fjögur rúningsnámskeið í
júnímánuði, þar sem sölu- og framleiðslustjóri Sunbeam-
verksmiðjanna í Bandaríkjunum, Mr. E. Warner, sýndi,
bvernig nota skuli rúningsvél, sem O. Johnson & Kaaber
befur umboð fyrir.
Undirbúningur landbúnaSarsýningar. Á Búnaðarþingi
1965 var samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Búnaðarþing samþykkir að fela stjórn Búnaðarfélags
Islands að hefja undirbúning að því, að liægt verði að
bafa landbúnaðarsýningu í Reykjavík sumarið 1966.
Jafnframt beinir þingið því til stjórnar Búnaðarfélags
Islands, að hún leiti til annarra félagsstofnana og sam-
taka landbúnaðarins um samstarf og þátttöku í sýning-
Luni, og að liið fyrsta verði ráðinn framkvæmdastjóri
og skipuð sýningarnefnd lil að annast undirbúning og
skipulag sýningarinnar.“
3Nú undanfarin ár hefur verið unnið að byggingu sýn-
ingarballar í Laugardal, rétt norðan Suðurlandsbrautar