Búnaðarrit - 01.01.1966, Page 21
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA 15
fossi 30. apríl og flutti þar ávarp. Hann flutti erindi á
bændafundi í Borgarnesi 13. maí og svaraSi fyrirspurn-
um og flutti erindi á bændafundi í Eyjafirði 8. ágúst.
Þá tók búnaðarmálastjóri boði Búnaðarsambands Aust-
urlands um að koma á liéraðssýningu sauðfjár, er haldin
var á Egilsstöðum 16. og 17. október, og flutti þar ávarp.
Undirritaður fór nokkrar ferðir út um sveitir, án þess
að mæta á bændafundum, stundum í ferð með erlendum
gestum. Á þeim ferðum var hyllzt til að lieimsækja til-
raunastöðvar og tilraunabú og einnig komið til margra
bænda. Þakka ég öllum, er hlut eiga að máli, ágæta fyrir-
greiðslu og mikla gestrisni.
För stjórnar og búnaðarmálastjóra rnn Vestfirði
Stjórn Bfl. Islands ákvað að gera ferð um Barðastrand-
arsýslur og Isafjarðarsýslur ásamt með búnaðarmálastjóra
til þess að sjá með eigin augum búnaðarástandið í þess-
um landsliluta, sækja beim forvígismenn bændasamtak-
anna í þessum sýslum og fleiri bændur og ræða við þá
vandamálin og framtíðarmöguleikana. Ferð þessi var
farin dagana 18.—25. ágúst. Því miður gat Gunnar Þórð-
arson ekki tekið þátt í förinni, en við vorum 5 saman,
Þorsteinn Sigurðsson, Pétur Ottesen og undirritaður
asamt konum okkar Þorsteins, Ágústu Jónsdóttur og Sig-
ríði Klemenzdóttur. Ferð þessi var í senn lærdómsrík og
ánægjuleg. Er lialdið var af stað, var ákveðið að heim-
sækja sem flestar sveitir í nefndum sýslum. Við ókum
ems og leið liggur um Borgarfjörð og Dali með viðkomu
í Ásgarði lijá þeim bjónum Ingibjörgu Sigurðardóttur og
Ásgeiri Bjarnasyni, bónda, alþingismanni og búnaðar-
þmgsfulltrúa. Eftir ágætar móttökur og ánægjulega stund
á þecsu kunna höfuöbóli var haldið í Bjarkarlund, þar
sem gisí var fyrstu nóttina. Ekki gáfum við okkur tíma
til að heimspekja einstaka bændur í Geiradalshreppi og
Beykhólasveit, en héldum af stað árla næsta dag vestur